Leggur Geir stein í götu Alfreðs? | Endaspretturinn í Þýskalandi hefst í kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. apríl 2015 14:30 Alfreð Gíslason og Geir Sveinsson þekkjast vel og mætast í kvöld. vísir/getty
Endaspretturinn í þýsku 1. deildinni í handbolta hefst fyrir alvöru í kvöld þegar meistarar Kiel heimsækja Magdeburg. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 klukkan 18.10. Kiel er á toppnum í deildinni með 53 stig eftir 30 leiki, jafnmörg stig og Rhein Neckar Löwen en mun betri markatölu. Kiel er með 215 mörk í plús en Ljónin 174 mörk í plús. Liðin skildu jöfn í stórleiknum á Páskadag og Löwen vann svo Melsungen í gærkvöldi í leiknum sem það átti til góða. Sex leikir skilja því Kiel og 20. meistaratitilinn að. Geir Sveinsson getur hjálpað Alexander Peterssyni og Stefáni Rafni Sigurmannssyni og félögum þeirra í Rhein-Neckar Löwen mikið með að hirða stig af Kiel í kvöld, en Kei á einnig eftir eftir erfiðan leik gegn Göppingen áður en taka við fjórir „auðveldir“ leikir. Fari Kiel með sigur af hólmi í næstu tveimur leikjum má svo gott sem bóka sjötta Þýskalandsmeistaratitlinn á Alfreð Gíslason sem þjálfara liðsins. Löwen á eftir leiki gegn Füchse Berlín og Magdeburg í lokaumferðinni af þeim liðum sem eru í Evrópubaráttu. Rétt eins og hjá Kiel eru hinir fjórir leikirnir frekar auðveldir fyrir Löwen. Ljónin búast væntanlega ekki við of miklu af Geir og lærisveinum hans í kvöld, en þegar liðin mættust í Sparkassen Arena í Kiel unnu heimamenn tólf marka sigur, 34-22. Alfreð Gíslason og Geir Sveinsson þekkjast vel, en þeir voru lengi samherjar í landsliðinu og voru báðir í liðinu sem varð heimsmeistari í B-keppninni í Frakklandi 1989.
Handbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira