Hvað þýða "emoji“ karlarnir á Snapchat? Jóhann Óli Eiðsson skrifar 8. apríl 2015 15:47 Björn Bragi útskýrir nýju emoji kallana. myndir/björn bragi
Nýjasta uppfærsla Snapchat forritsins hefur verið milli tannanna á fólki að undanförnu. Við hliðina á nöfnum í vinalistanum hafa svokallað emoji kallar tekið upp á því að birtast og margir velt því fyrir sér hvað þeir tákna. Svarið er það að kallarnir hafa tekið við af Top Friends til að sýna fólki hvar það er statt á vinalista annarra. Karlarnir eru alls sex. Hjarta við hlið nafns einhvers þýðir að þið eruð efstir á vinalista hjá hvor öðrum en sá sem gnístir tönnum táknar að besti vinur þinn er besti vinur einshvers annars. Margir hafa haft á orði að það sé versti karlinn. Sólgleraugnakarlinn táknar að einhver af þínum bestu vinum hefur þann notanda sem sinn besta vin en venjulegur broskarl táknar að þið eruð ofarlega á lista hvors annars þó hvorugur nái þeim stalli að vera sá besti. Karlinn með skítaglottið táknar að annarhvor ykkar er með hinn sem besta vin á meðan hinn hefur aldrei fyrir því að svara. Sá er einna líklegastur til að valda sambands- eða vinaslitum. Að endingu ber að nefna að eldurinn táknar að þú og viðtakandinn hafið verið duglegir að senda snöpp á milli ykkar síðustu daga.Björn Bragi Arnarssonvísir/arnþórAri Eldjárn kann ekki á Snapchat Björn Bragi Arnarsson, Gettu Betur spyrill og meðlimur uppistandshópsins Mið-Íslands, er einn þeirra sem notar samskiptaforritið talsvert. Við fengum hann því til að sýna myndrænt hvernig vinalisti hans lítur út um þessar mundir. „Til að byrja með er rétt að nefna það að Ari er eins og amma manns á Snapchat. Ég held hann kunni ekki einu sinni að opna það,“ segir Björn Bragi. „Enda er ég fyrir löngu hættur að senda honum stakan hlut.“ Allir sem vilja getað bætt Birni á vinalista sinn en hann snappar undir nafninu bjornbragi. „Við Jói sendum hvor öðrum reglulega hluti enda þykir mér vænt um hann og sakna hans ef ég sé hann ekki með reglulegu millibili. Dóri greyið hætti síðan á Snapchat um daginn af því enginn sendi honum neitt. Okkur tókst samt að gabba hann í að byrja aftur og sendum honum öðru hvoru línu til að halda honum góðum.“ Fjórmenningarnir mynda Mið-Ísland hópinn en sýning þeirra, Lengi lifi Mið-Ísland, hefur gengið fyrir nærri fullu húsi síðan í janúar og yfir 10.000 manns séð sýninguna. Margir gestir hafa aðstoðað við sýninguna en þeirra á meðal má nefna Önnu Svövu Knútsdóttur, Sögu Garðars, Þorstein Guðmundsson og Berg Ebba Benediktsson. Síðustu sýningarnar voru að fara í sölu en nú um helgina verður kanadískur uppistandari með hópnum. Sá heitir Tom Shillue og hefur meðal annars komið fram hjá Jimmy Fallon og Conan O‘Brien. Að auki fylgir nýjustu uppfærslunni sá kostur að velja stillingu sem nemur betur myndefni í lélegri lýsingu. Að er nú hægt að sjá hvaða vini á Snapchat þú hefur vanrækt að undanförnu og rétt er að íhuga að senda þeim eitthvað á næstunni.
Tengdar fréttir Mið-Ísland kveikti ástarbál Hópurinn leysti parið út með gjöfum 25. febrúar 2015 10:00 „In love við the Kókó“: Björn Bragi hannar nýja auglýsingu "Ég er búinn að hanna nýja auglýsingu fyrir Kókómjólk. Þarf ekkert að fá borgað fyrir hana.“ 28. janúar 2015 09:55 Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira
„In love við the Kókó“: Björn Bragi hannar nýja auglýsingu "Ég er búinn að hanna nýja auglýsingu fyrir Kókómjólk. Þarf ekkert að fá borgað fyrir hana.“ 28. janúar 2015 09:55