Niðurstaða komin í mál sem hægt er að rekja til 15. aldar Jóhann Óli Eiðsson skrifar 15. október 2015 17:38 Eignarhald á Dyrhólaey verður óbreytt. vísir/pjetur
Hæstiréttur sneri í dag við úrskurði Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að landeigendur Vesturhúsa í Mýrdalshreppi ættu tæplega fimmtungshlut í Dyrhólaey á móti Mýrdalshreppi og eigendum Austurhúsa. Í dóminum er rekið hvernig deilur um eignarhald yfir eynni ná aftur til 15. aldar. Í dómi frá þeim tíma leysti umboðsmaður Skáholtsbiskups ásampt sex meðdómsmönumm úr ágreiningi milli eigenda jarðanna tveggja. Dómurinn var á þá leið að klaustrið í Þykkvabæ skyldi eiga helming í eynni til móts við eigendur bæjarins Dyrhólaeyjar eystri. Árið 1735 féll dómur sýslumanns Vestur-Skaftafellssýslu og átta meðdómenda þess efnis að ábúendur Vesturhúsa ættu rétt til hagbeitar í eynni. Í málinu lágu fyrir tvö landamerkjabréf, annars vegar fyrir Austurhús 21. júní 1890 og hins vegar fyrir Vesturhús 30. sama mánaðar. Voru þau bæði þinglesin á manntalsþingi síðargreinda daginn og síðan rituð í landamerkjabók Skaftafellssýslu svo sem kveðið hefði verið á um í þágildandi landamerkjalögum. Talið var að lýsing landamerkjabréfanna á mörkum landanna tveggja væri nánast sú sama og ætti hún sér, að minnsta kosti að verulegu leyti, fyrirmynd í eldri heimildum, svo sem í lögfestu frá 1762.Of seint að hreyfa við andmælum eftir rúma öld Af ákvæðum landamerkjabréfanna yrði ekki dregin önnur ályktun en sú að samkvæmt þeim hefðu eigendur Austurhúsa átt beinan eignarrétt yfir eynni, en eigendur Vesturhúsa óbeinan, hvort sem með þessu hefði verið staðfest sú réttarstaða, sem fyrir hefði verið, eða breytt henni frá því sem áður hafði verið. Eigendur Austurhúsa, sem eigendur Dyrhólaeyjar, afsöluðu íslenska ríkinu hluta af eynni undir vita og tengda starfsemi gegn endurgjaldi, fyrst árið 1910 og síðar 1928. Þeim gerningum hefði báðum verið þinglýst án þess að séð yrði að eigendur Vesturhúsa hefðu fundið að þessum ráðstöfunum fyrr en löngu síðar. „Gögn málsins bera ekki með sér að eigendur jarða, sem heyra til Vesturhúsum, hafi hreyft andmælum gegn gildi landamerkjabréfsins frá 21. júní 1890 fyrr en í aðdraganda þess að mál þetta var höfðað. Þegar litið er til eðlis landamerkjabréfsins sem samnings um landamerki og þar með eignarhalds á landi innan þeirra marka er fallist á með áfrýjendum að stefndu geti ekki nú, rúmum 120 árum síðar, haft uppi andmæli gegn gildi bréfsins vegna þess hvernig háttað var undirritunum á það. Er sá réttur þeirra því fallinn niður fyrir tómlætis sakir af hálfu eigenda umræddra þriggja jarða,“ segir orðrétt í niðurstöðu dómsins. Voru eigendur Austurhúsa og Mýrdalshreppur því sýknuð af kröfum eigenda Vesturhúsa en héraðsdómur hafði komist að öndverðri niðurstöðu.
Tengdar fréttir Jarðrask á friðaðri Dyrhóley: RARIK gleymdi að láta Umhverfisstofnun vita Ekki ljóst hver viðbrögðin verða, segir sviðsstjóri Umhverfisstofnunar. 20. apríl 2015 18:12 Líklegt að meira hrun verði í Dyrhólaey Stór skriða féll í Dyrhólaey í gær og tók í sundur göngustíg sem er iðulega notaður. 5. maí 2015 09:38 Stór skriða féll í Dyrhólaey: "Stígurinn sem alltaf er genginn liggur bara beint út þetta“ "Ég gekk bara fram á þetta með hóp af ferðamönnum núna í hádeginu,“ segir Aron Reynisson, leiðsögumaður, í samtali við Vísi. Stór skriða féll í Dyrhólaey og tók í sundur göngustíg sem er iðulega notaður. 4. maí 2015 15:40 Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Jarðrask á friðaðri Dyrhóley: RARIK gleymdi að láta Umhverfisstofnun vita Ekki ljóst hver viðbrögðin verða, segir sviðsstjóri Umhverfisstofnunar. 20. apríl 2015 18:12
Líklegt að meira hrun verði í Dyrhólaey Stór skriða féll í Dyrhólaey í gær og tók í sundur göngustíg sem er iðulega notaður. 5. maí 2015 09:38
Stór skriða féll í Dyrhólaey: "Stígurinn sem alltaf er genginn liggur bara beint út þetta“ "Ég gekk bara fram á þetta með hóp af ferðamönnum núna í hádeginu,“ segir Aron Reynisson, leiðsögumaður, í samtali við Vísi. Stór skriða féll í Dyrhólaey og tók í sundur göngustíg sem er iðulega notaður. 4. maí 2015 15:40