Leita til dómstóla vegna laxeldisáforma Svavar Hávarðsson skrifar 28. desember 2015 08:00 LV vill ekki sjá norskan lax alinn í sjó við Ísland. vísir/sigurjón
Landssamband veiðifélaga (LV) hefur sent Hraðfrystihúsinu Gunnvöru á Ísafirði harðort bréf þar sem skorað er á fyrirtækið að láta af áformum um sjókvíaeldi norskra laxa í Ísafjarðardjúpi. Bréfið er sent í tilefni þess að HG hefur auglýst drög að matsáætlun fyrir 6.800 tonna laxeldi á sex svæðum í Ísafjarðardjúpi. Í bréfi LV kemur fram að sambandið muni leitast við eftir fremsta megni að stöðva fyrirhugaða framkvæmd eldis norskra laxa á öllum stigum málsins og leita atbeina dómstóla til að hnekkja útgáfu eldisleyfis ef svo ber undir. Þá furðar LV sig á að Hraðfrystihúsið Gunnvör „skuli hafa flutt sjókvíaeldið í óburðugt einkahlutafélag, Háfell ehf. í sinni eigu“. Telur LV að með þessu sé Hraðfrystihúsið Gunnvör að skjóta sér undan skaðabótaskyldu vegna umhverfistjóns sem starfsemin muni valda í nærliggjandi laxveiðiám. Jón Helgi Björnsson, formaður LV, segir málatilbúnað fyrirtækisins gallaðan þar sem HG sé skráður framkvæmdaraðili í matsferlinu en starfsemin sé í rauninni hjá öðrum lögaðila, Háafelli ehf. Hann segir fyrirtækið hafa stundað blekkingaleik þegar það sótti um leyfi til að ala regnboga en ætlunin hafi svo verið að fá þessum leyfum breytt í laxeldisleyfi. Hann segir að LV muni skjóta þessu máli til dómstóla verði gefið út leyfi til eldisins enda sé eldi norskra laxa við ósa laxveiðiáa gróft brot stjórnvalda á samkomulagi hagsmunaaðila og landbúnaðarráðuneytisins frá 1988 um að aðeins skyldi leyfa eldi á norskum laxi í landstöðvum. Vakin hefur verið athygli Skipulagsstofnunar á málinu.Vegna aðgerða Landssambands veiðifélaga vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi, vill Höskuldur Steinarsson, formaður Landssambands fiskeldisstöðva, koma eftirfarandi á framfæri:Fáar atvinnugreinar á Íslandi búa við jafn miklar takmarkanir og strangt regluverk og fiskeldi í sjókvíum. Frá árinu 2004 hefur verið óheimilt að ala laxfiska í sjókvíum í námunda við laxveiðiár á Íslandi og eldissvæðin því takmörkuð við Vestfirði, Austfirði, Eyjafjörð og Öxarfjörð. Var það raunar gert varðandi frjóa laxa með auglýsingu nr. 226/2001. Hér er um að ræða mjög afgerandi ráðstöfun til varnar hugsanlegum óæskilegum áhrifum á villta laxastofna, komi til óhappa eða slysasleppinga við sjókvíaeldi. Þetta er regluverk sem eftir er tekið erlendis, enda til fyrirmyndar þegar kemur að sambúð fiskeldis og villtra stofna. Það liggur í hlutarins eðli að þetta stranga regluverk sem setur fiskeldismönnum mjög þröngar skorður hvað varðar eldissvæði, tekur fram fyrri takmörkunum og eftir þessu hafa eldisfyrirtækin því starfað, í sátt við hið opinbera og þau samfélög þar sem þau starfa. Þar sem Ísafjarðardjúp fellur sannanlega innan þeirra svæða sem skilgreind eru sem eldissvæði, samkvæmt áðurnefndri auglýsingu, þá er erfitt að skilja á hverju hótanir um lögsókn byggja gagnvart fyrirtæki sem hyggst byggja upp þar atvinnustarfsemi á komandi árum. Landssamband fiskeldisstöðva bendir á að laxeldisstarfsemi hefur átt stóran þátt í þeim viðsnúning sem orðið hefur í atvinnulífinu á sunnanverðum Vestfjörðum undanfarin 5 ár. Skynsamleg uppbygging atvinngreinarinnar í Ísafjarðardjúpi er því fagnaðarefni fyrir það atvinnusvæði.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Fleiri fréttir Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Sjá meira