Greiða milljarð í bætur vegna vændiskvenna Jóhann Óli Eiðsson skrifar 28. desember 2015 15:25 Fumio Kishida (t.v) og Yun Byung-se handsala samkomulagið.
Japan og Suður-Kórea hafa komist að samkomulagi um bætur vegna suðurkóreskra portkvenna sem neyddar voru til að starfa á japönskum vændishúsum í síðari heimstyrjöldinni. Þetta kemur fram á vef BBC. Samkomulagið felur í sér að Japan greiðir einn milljarð jena, tæplega 1,1 milljarð íslenskra króna, í sjóð sem síðan mun úthluta fénu til fórnarlamba. Sambærilegum sjóð var komið á fót árið 1995 en sá var kostaður af einkaaðilum en ekki japanska ríkinu. Vændiskvennadeilan hefur staðið yfir frá lokum stríðs en þetta er fyrsta samkonulagið sem næst í henni í hálfa öld. Fumio Kishida, utanríkisráðherra Japan, og Yun Byung-se, suðurkóreskur starfsbróðir hans, sættust fyrir hönd þjóðanna í Seúl í dag. „Forsætisráðherrann vill koma á framfæri einlægri afsökunarbeiðni til allra þeirra sem þjáðust og fengu ör, bæði á sál og líkama, sem seint munu gróa, ef einhvern tímann,“ sagði Kishida við undirritunina en Shinzo Abe, forsætisráðherra landsins, var ekki viðstaddur. Yfir 200.000 konur voru neyddar til kynlífsþrælkunar af Japönum á meðan síðara stríðið stóð yfir. Stærstur hluti þeirra var frá Kóreu en 46 slíkar eru enn á lífi. Margar þeirra voru frá Kína, Indónesíu, Filippseyjum, Indónesíu og Taívan. Japanir eru þekktir fyrir grimmdarverk sín í stríðinu og nægir að nefna slátrunina í Nanjing.
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent B sé ekki best Innlent Fleiri fréttir Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Sjá meira