Ljónin töpuðu óvænt í Svíþjóð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2015 19:20 Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk í kvöld. Vísir/Getty
Sænska liðið Kristianstad vann þriggja marka sigur á Rhein-Neckar Löwen, 32-29, í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen í leiknum og var þriðji markahæsti maður liðsins. Kristianstad var búið að tapa fjórum Meistaradeildarleikjum í röð fyrir leik kvöldsins eða öllum leikjum sínum frá því að liðið vann danska liðið KIF Kolding í fyrsta leik. Þetta var aðeins annað tap Rhein-Neckar Löwen í Meistaradeildinni en liðið var í þriðja sæti riðilsins fyrir þennan leik, fjórum sætum og fimm stigum ofar en sænska liðið. Stefán Rafn Sigurmannsson datt út úr landsliðshópnum á dögunum en minnti aðeins á sig með því að skora fjögur mörk úr fimm skotum. Stefán Rafn skoraði eitt mark í fyrri hálfleik og þrjú í þeim síðari. Alexander Petersson skoraði 1 mark úr 4 skotum en markahæstur hjá Ljónunum var Svisslendingurinn Andy Schmid með átta mörk og þá skoraði Svíinn Kim Ekdahl Du Rietz 6 mörk. Kristianstad lagði grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik sem liðið vann 20-12. Ungverjinn átti Iman Jamali átti mjög flottan leik og skoraði 8 mörk úr 9 skotum. Kristianstad breytti stöðunni úr 2-2 í 11-3 í upphafi leiks og var með mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum eftir það. Kristianstad var síðan tíu mörkum yfir, 27-17, þegar tíu mínútum voru liðnar af seinni hálfleiknum en Ljónin náðu að minnka muninn niður í tvö mörk í blálokin áður en heimamenn kláruðu leikinn.
Handbolti Mest lesið „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ Handbolti Isak í hópnum í París Enski boltinn Sveindís fyrst til að hljóta verðlaun vestanhafs Fótbolti Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Enski boltinn Havertz hetjan í steindauðri skák Fótbolti Bayern hafði betur í skemmtilegum leik Fótbolti Úti er ævintýri hjá Völsungi Fótbolti „Mér finnst ég alltaf koma með orku í liðið“ Sport Goðsögn fallin frá Fótbolti Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ „Þetta er margfræg klisja“ „Tel mig vera rosalegan stemningskarl“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Íslendingaliðið áfram eftir frábæran sigur Stórleikur Kristjáns dugði skammt Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda „Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Stjarnan og Grótta spila upp á sæti í efstu deild Haukar áfram í undanúrslit en Akureyringar í sumarfrí Birgir markahæstur í óvæntum sigri Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Í afar erfiðum málum eftir stórt tap Sjá meira