Getnaðarvarnarpillan getur dregið úr líkum á krabbameini Jóhann Óli Eiðsson skrifar 6. ágúst 2015 18:15 Getnaðarpillan getur bjargað lífum. vísir/getty
Ný rannsókn sýnir fram á að getnaðarvarnarpillan kemur ekki aðeins í veg fyrir getnað heldur eru líkur á því að hún geti einnig minnkað líkurnar á því að krabbamein myndist í móðurlífi kvenna. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í The Lancet Oncology, hliðartímariti The Lancet sem er helgað er greinum um krabbamein. Rannsakendur skoðuðu gögn frá yfir 27.000 konum sem fengið höfðu krabbamein í legið og tæplega 116.000 sem höfðu ekki fengið meinið. Samkvæmt rannsakendunum má leiða að því líkum að undanfarna hálfa öld hafi pillan komið í veg fyrir um 400.000 tilfelli krabbameins af þessari tegund. Þeir segja að fyrir hver fimm ár á pillunni minnki líkurnar af því að fá meinið um allt að fjórðung. „Verndaráhrif pillunnar halda áfram að virka eftir að inntöku hennar er hætt. Það þýðir að konur sem nota pilluna meðan þær eru á þrítugsaldri njóta góðs af því er þær eldast og líkurnar á krabbameini aukast,“ segir Valerie Beral við Oxford háskólann en hún er einn höfunda greinarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsfélaginu, frá árunum 2008-2012, greinast að meðaltali 27 konur með krabbamein í legbol á ári. Meðalaldur við greiningu er 64 ár. Að meðaltali létust sex konur á ári úr meininu.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Veður Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Fleiri fréttir Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Sjá meira