Einn viðskiptavinanna hringdi á Neyðarlínuna Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 31. desember 2015 07:00 Tæknideild lögreglu að störfum í útibúi Landsbankans í Borgartúni. Fréttablaðið/Vilhelm
Tveir voru handteknir í gær í tengslum við vopnað bankarán í útibúi Landsbankans í Borgartúni í gær. Ekki er um að ræða gerendur í málinu heldur hugsanlega vitorðsmenn eða einstaklinga sem geta veitt upplýsingar vegna málsins. „Þeir voru ógnandi,“ segir Jóhanna Þorbjargardóttir, viðskiptavinur Landsbankans, sem var stödd í útibúi bankans í Borgartúni þar sem tveir menn frömdu vopnað rán skömmu fyrir klukkan hálf tvö í gær. Jóhanna hljóp til og hringdi á Neyðarlínuna á meðan á ráninu stóð. „Ég stóð hjá gjaldkeranum og var að taka út. Þá heyrist kallað: Þetta er rán. Ég hljóp bara í burtu og hringdi í 112. Svo tóku þeir alla peningana sem þeir gátu.“ Hún segir starfsfólki bankans hafa verið ógnað. „Þeir hristu gjaldkera og þeir komu hlaupandi. Þeir ógnuðu starfsfólkinu, það var öllum rosalega brugðið.“ Jóhanna segir mennina hafa skilið bílinn eftir í gangi fyrir utan á meðan þeir rændu bankann. Um var að ræða hvítan sendiferðabíl, Ford Transit, með skráningarnúmerinu VDZ 53 sem fannst í Barmahlíð á þriðja tímanum. Annar maðurinn var vopnaður skammbyssu en hinn vopnaður hnífi. Myndir af þeim úr öryggismyndavélum bankans sýna vopnaburðinn. Mennirnir höfðu á brott með sér fjármuni en forsvarsmenn Landsbankans segja að upphæðin sé óveruleg. Starfsmönnum bankans var boðin áfallahjálp. Viðskiptavinum og starfsmönnum bankans var hleypt út bakdyramegin eftir skýrslutöku lögreglu. Um tíu viðskiptavinir voru í bankanum. Nokkur börn voru í bankanum þegar ræningjana bar að. Þeir viðskiptavinir sem blaðamaður náði tali af sögðust skelkaðir og óttuðust að ræða atburðinn undir nafni. „Ég vil ekki koma fram undir nafni ef það skyldi vera einhver undirheimaklíka á bak við ránið,“ sagði einn þeirra, verkamaður sem hafði skroppið í bankann. Hann hafði verið inni í bankanum í stutta stund þegar ræningjarnir birtust. „Þeir stukku yfir borðið, hristu gjaldkera til og hrópuðu nokkrum sinnum: Þetta er rán. Einn þeirra hélt á hníf og ég tel mig líka hafa séð annan þeirra með byssu.“ Honum virtist þjófarnir ganga ákveðið til verks. „Þetta voru einhverjir sem vissu hvað þeir voru að gera. Þeir voru hettuklæddir með klút fyrir vitunum.“ Hann lýsir því rétt eins og Jóhanna að mikil skelfing hafi gripið um sig í bankanum. „Ég þarf að fara heim og jafna mig. Það mun taka smá tíma. Þetta var virkilega vond reynsla.“ Ríkislögreglustjóri og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stýra aðgerðum í sameiningu við rannsókn málsins. Mannanna var leitað á höfuðborgarsvæðinu í gær og mest í Hlíðahverfinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð við leitina. Einn maður var handtekinn í Öskjuhlíð um sex leytið í gær í tengslum við ránið. Þá girti lögregla af fjölbýlishús við Stigahlíð á sjöunda tímanum í gær og leitað var í bifreiðum á leið úr hverfinu.Mynd af ræningjunum úr eftirlitsmyndavél bankans. Lögreglan bað í gær um aðstoð við að hafa uppi á þeim.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Fleiri fréttir Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sjá meira