Þórir heldur ræður sem gefur manni gæsahúð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2014 07:45 Þórir Hergeirsson hefur náð frábærum árangri. fréttablaðið/afp
Noregur vann enn ein gullverðlaunin á stórmóti undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar en Norðmenn urðu um helgina Evrópumeistarar kvenna eftir sigur á Spáni í úrslitaleik. Þórir hefur fengið mikið lof í norskum fjölmiðlum eftir sigurinn enda hefur hann endurnýjað lið sitt að stórum hluta. Hornamaðurinn Camilla Herrem, bar mikið lof á þjálfarateymið eftir sigurinn og sagði að Þórir ætti mikið í velgengninni. „Allt þjálfarateymið hefur lagt gríðarlega mikla vinnu á sig undanfarið ár og mæta ótrúlega vel undirbúin í hvern einasta leik,“ sagði Herrem. „Þetta vill oft að miklu leyti snúast um okkur leikmennina en þjálfarateymið stendur sig afar vel.“ Herrem segir að Þórir viti ávallt nákvæmlega hvað hann eigi að segja við leikmenn fyrir leiki liðsins og að hún fái stundum gæsahúð við að hlusta á hann. „Hann veit hvað hann á að segja upp á hár. Þórir hefur verið í þessu í afar langan tíma og það er enginn betri en hann í að halda rónni þegar mikið liggur við. Það gerir hann einstaklega vel.“ Með sigrinum náði Noregur að tryggja sér keppnisrétt í næstu heimsmeistarakeppni sem og Ólympíuleikunum í Ríó 2016.
Handbolti Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Sjá meira