Lífið

Anne Hathaway og Kristen Stewart í karlmannsgervi

Leikkornurnar taka sig vel út í gallanum.
Leikkornurnar taka sig vel út í gallanum. mynd/skjáskot
Þrátt fyrir að vera stórstjörnur í Hollywood þá eru leikkonurnar Anne Hathaway og Kristen Stewart ekki hræddar við grínið og það sönnuðu þær svo sannarlega í nýju tónlistarmyndbandi Jenny Lewis við lagið Just One of the Guys.

Í myndbandinu má sjá leikkonurnar í líflegri stelpusveit og síðan í karlmannsgervi þar sem þær skarta myndarlegri mottu og Adidas hlaupagalla.

Á einum tímapunkti reynir Hathaway fyrir sér í svonefndum breik-dansi en dansinn er ekki beint á heimsklassa enda líklegast bara gerður upp á grínið.

Myndbandið sjálft má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.