Komst ekki inn í listnám fyrr en í þriðju tilraun Ólöf Skaftadóttir skrifar 30. apríl 2014 09:00 Goddur hefur tekið þátt í uppbyggingu náms í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands frá stofnun hans. Fréttablaðið/Anton „
Málið er að ég er búin að eyða miklum tíma í það í gegnum minn tíma sem kennari að tala um aðra og flytja fyrirlestra um aðra, en ég hef aldrei fjallað um sjálfan mig,“ segir Guðmundur Oddur Magnússon, betur þekktur sem Goddur, prófessor í grafískri hönnun sem heldur fyrirlestur um sinn eigin grafíska myndheim í fyrirlestrarröð Hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, SNEIÐMYND í Þverholti 11 í hádeginu í dag. „Þannig að þetta er í fyrsta sinn sem ég sýni hvað ég hef verið að gera síðastliðin 40 ár,“ segir Goddur, sem hóf ferilinn á auglýsingastofu á Akureyri. „Ég fékk hlutastarf við að aðstoða á stofunni,“ rifjar hann upp, og bætir við að í menntaskóla hafi hann alltaf haft gaman af því að búa til plaggöt og skólablöð. „Mig langaði að læra eitthvað þessu tengt, en komst reyndar ekki inn í Myndlista- og handíðaskólann fyrr en í þriðju tilraun,“ segir hann og hlær, en hann nam í skólanum frá 1976-1979. „Mér leist ekkert á auglýsingadeildina þannig að ég skipti alveg um og fór í myndlist því deildin var svo miklu skemmtilegri á þeim tíma.“ Hann útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Emily Carr College of Art and Design í Vancouver, Bresku Kólumbíu árið 1989. „Ég tilheyri þeirri kynslóð sem fyrst lærir grafíska hönnun í Macintosh umhverfi þannig að það voru bara rauðir dreglar þegar ég kem heim frá Kanada og menn vildu ólmir fá mig til að kenna. Þá varð ég tæknikennari í einhver ár, en nemendurnir voru fljótir að taka fram úr mér. Og ég fattaði að ég ætti ekki séns í tölvusnillingana. Það var ekki fyrr en ég fór í fræðikennslu sem að aldurinn fór að vinna með mér og skeggið síkkaði og hárið, og ég þurfti lítið annað að gera en að láta sjá mig og þá urðu allir hræddir,“ segir Goddur og hlær. „En í gegnum árin hef ég aðallega verið að vinna að hönnun fyrir menningarstofnanir og listamenn, viðburði og oft hef ég sjálfur tekið þátt í allskonar gjörningum og gert þá plaggöt fyrir þá,“ segir Goddur. „Þetta verður eins og kvikmynd af öllu heila klabbinu.“
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira