Börn í Palestínu styrkt Gunnar Leó Pálsson skrifar 15. ágúst 2014 14:00 Vinkvennahópurinn Fuglabjargið stendur fyrir söfnun fyrir börn í Palestínu á Kexi Hosteli á sunnudag. Mynd/einkasafn „
Við erum stór vinkvennahópur sem langar að láta gott af okkur leiða. Í ljósi aðstæðna í Palestínu og þeirrar miklu neyðar sem þar ríkir ákváðum við að taka okkur saman og halda söfnun,“ segir Svava Gunnarsdóttir, ein vinkonan úr vinkvennahópnum Fuglabjarginu sem stendur fyrir degi til styrktar börnum í Palestínu á Kexi Hosteli á sunnudaginn. Um er að ræða dag sem helgaður er því að safna fé fyrir börn í Palestínu en ástandið þar er ansi slæmt sökum stríðsátaka og því ákaflega verðugt að styrkja blessuð börnin. Svava og vinkonur hennar ætla að gera ýmislegt til að afla fjár fyrir börnin. „Við höfðum samband við starfsmenn Rauða krossins sem töldu að best væri að safna peningum sem myndu renna óskiptir í hjálparstarf þeirra á svæðinu og þá helst til barnanna sem eiga um sárt að binda á þessum erfiðu tímum. Við verðum með markað þar sem föt og fleira spennandi verður til sölu fyrir lítinn pening,“ útskýrir Svava. Þær hafa fengið ýmsar vörur frítt frá ýmsum fyrirtækjum sem þær ætla selja og það fé sem safnast rennur beint í sjóð Rauða krossins. „Nú þegar höfum við fengið frábær viðbrögð frá þeim fyrirtækjum sem við höfum haft samband við. Við erum því mjög bjartsýnar á að vel muni takast til og fjölmargir muni láta sjá sig, eiga skemmtilegan dag og styrkja gott málefni í leiðinni.“ Pylsur, vöfflur og sælgæti verður til sölu og andlitsmálning fyrir börnin verður á staðnum. Einnig verður happdrætti þar sem fjölmargir frábærir vinningar verða í boði. „Við verðum með fatamarkað – erum að selja föt af okkur sjálfum, af börnum þeirra sem eiga börn í hópnum og karlaföt einnig,“ bætir Svava við. Þá verður einnig lifandi tónlist á staðnum og hvetur Svava alla þá sem vilja r"tta hjálparhönd að leggja leið sína á Kex á sunnudag. „Margt smátt gerir eitt stórt.“ Viðburðurinn hefst klukkan 14.00 á sunnudaginn.
Mest lesið Dolly Parton látin Lífið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Stjörnum prýtt svitapartý Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Bíó og sjónvarp Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Tónlist Harington tekur við af uppteknum Hoult Bíó og sjónvarp Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Sjá meira