Viðskipti innlent

Byggir 825 herbergi á næstu þremur árum

Haraldur Guðmundsson skrifar
Teikning Hótelið á Húsavík verður stækkað um 4.700 fermetra. Framkvæmdirnar munu kosta um einn milljarð króna. Mynd/Íslandshótel
Teikning Hótelið á Húsavík verður stækkað um 4.700 fermetra. Framkvæmdirnar munu kosta um einn milljarð króna. Mynd/Íslandshótel
Hótelherbergjum Íslandshótela hf. mun fjölga um 825 á næstu þremur árum með opnun fjögurra nýrra hótela og stækkun á þremur öðrum. Heildarfjárfesting fyrirtækisins, sem rekur hótelkeðjurnar Fosshótel og Reykjavíkurhótel, vegna framkvæmdanna er um 7,2 milljarðar króna.

„Í dag erum við að reka tæplega ellefu hundruð herbergi og við erum því nánast að tvöfalda okkar herbergjafjölda á næstu þremur árum,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela.

Fyrirtækið vinnur nú að stækkun hótels við Höfn í Hornafirði þar sem herbergjum verður fjölgað um 40. Áætluð verklok eru í júní og þá ætlar Íslandshótel einnig að opna nýtt 26 herbergja hótel í Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði. Síðar á árinu hefjast framkvæmdir við stækkun hótels á Húsavík. Þar verður herbergjum fjölgað úr 70 í 114 með viðbyggingu sem verður um 4.700 fermetrar að stærð.

„Svo munum við reka hótelið á Höfðatorginu sem verður opnað á næsta ári með 320 herbergjum. Á gamla Blómavalsreitnum við Grand hótel eru síðan áform um 100 íbúðir sem fara á sölumarkað en einnig 170-200 hótelherbergi sem verða af fimm stjörnu klassa. Framkvæmdir munu vonandi hefjast fljótlega á næsta ári en þetta er í skipulagsferli en vonandi verður hótelið opnað árið 2017,“ segir Davíð. Hann bætir við að fyrirtækið hafi einnig fengið samþykki fyrir nýju 90 herbergja hóteli á Grímsstöðum við Mývatn og 116 herbergja hóteli á Hnappavöllum í Öræfum. Þau verða opnuð sumarið 2016.

„Okkar markmið með þessum framkvæmdum er að efla gæði og fjölga gistirýmum. Við erum búin að ganga vel frá málum sem tengjast skipulagi og tryggja fjármögnun á miklu af þessum verkum og því er ekkert sem stoppar okkur,“ segir Davíð. Spurður segir hann fyrirtækið óttast offjárfestingu í ferðaþjónustu.

„Við óttumst offjárfestingu í geiranum og þá sér í lagi hugmyndir um gistingu af lægri gæðum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×