Verslingar herja á skjái landsmanna Gunnar Leó Pálsson skrifar 19. mars 2014 10:00 Nökkvi Fjalar Orrason styrkir einnig Mottumars, hann litaði hárið á sér til styrktar góðgerðarmálum í skólanum og ákvað að snoða sig algjörlega til styrktar Mottumars og er einnig að safna mottu. mynd/einkasafn „
Fólk er allavega að fíla þetta og við finnum fyrir miklum áhuga,“ segir Nökkvi Fjalar Orrason, forsprakki 12:00-nefndarinnar úr Verzlunarskóla Íslands, en þáttur nefndarinnar sem er henni samnefndur fer í sýningar á Popp TV síðar í mánuðinum. Um er að ræða grínþátt í sketsaformi sem hefur verið vinsæll í Versló síðan nefndin var stofnuð árið 1996. „Þetta byrjaði árið 1996 og var hugsað sem afþreyingar- og skemmtiþáttur í Versló. Þátturinn hefur stækkað mikið að umfangi jafnt og þétt undanfarin ár og hafa mörg þekkt nöfn komið fyrir í þáttunum,“ útskýrir Nökkvi Fjalar. Bræðurnir Jón Ragnar og Friðrik Dór Jónssynir, Ásgeir Orri og Pálmi Ragnar Ásgeirssynir úr StopWaitGo og Hraðfréttapiltarnir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson hafa allir komið fram í þáttunum. Hver þáttur er um 30 til 35 mínútna langur. „Þetta eru sketsar, við sýnum frá böllum og tökum viðtöl við fólk á böllum. Við erum svo alltaf með lag í lok hvers þáttar sem við leggjum mikið í og þau hafa öll vakið mikla lukku,“ segir Nökkvi Fjalar. Lögin voru til að mynda spiluð í dómarahléi á Söngkeppni Samfés og ætlaði allt um koll að keyra. „Aðstandendur Samfés sögðu að þetta hefði verið eins og tvö böll, eitt á föstudeginum og annað í dómarahléinu og það var mjög mikil stemning.“ Í síðustu viku kom út safnplata með vinsælustu lögunum úr 12:00 þáttunum og rennur allur ágóði plötunnar til krabbameinssjúkra barna. Á hverju ári er ný nefnd kosin og hefst nefndin handa við að smíða gott grín. „Það eru framleiddir tveir þættir á hverri önn. Við Egill Ploder erum í nefndinni núna og vorum líka í fyrra. Við höfum því gert átta þætti og ætlum að gera sex „best of“-þætti fyrir Popp TV,“ útskýrir Nökkvi Fjalar. Fyrsti þáttur fer í loftið föstudaginn 28. mars klukkan 20.00. Hægt er að forvitnast meira um þættina hér.
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira