Spennandi jóga sækir í sig veðrið á Íslandi Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. mars 2014 13:00 Guðrún Darshan er jógakennari og hómópati og rekur jógastöðina Andartak. myndir/einkasafn
Kundalini-jóga er frábrugðið öðru jóga. Það byggir á taktföstum hreyfingum, þar sem þú ert að hreyfa þig í takt við andardráttinn. Þegar þú gerir það, þá fer hugurinn að slaka á,“ segir Guðrún Darshan, jógakennari og hómópati, en hún rekur jógastöðina Andartak í Skipholti. Hún segir jóga vera góða líkamsrækt og meira en það. „Það dugir alveg að fara í Kundalini-jóga, það er mjög kröftugt og vel hægt að koma sér í gott form,“ segir Guðrún um jógað. Í Kundalini-jóga er lögð áhersla á miðju líkamans og magi og bak tekin vel fyrir í tímum. „Við erum líka að styrkja taugakerfið, það skiptir miklu máli. Margar æfingar sem iðkaðar eru í Kundalini-jóga eru þannig að þær reyna mikið á, og um leið er reynt að slaka á. „Við reynum að slaka þegar við æfum erfiðar æfingar. Það er sérstaklega gott fyrir keppnisfólk og fólk sem er undir miklu álagi, sem gildir um flest fólk í nútímasamfélagi,“ bætir Guðrún við.Allir tímar enda á slökun og hugleiðslu.Í lok hvers tíma er alltaf farið í slökun og hugleiðslu. „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur sem erum mikið á ferðinni að kunna að slaka á. Við þurfum að kunna að slökkva á streitunni. Hugurinn eltir alltaf andardráttinn, þegar við förum að dýpka andardráttinn þá hægist á huganum og þá getur líkaminn farið að slaka á,“ útskýrir Guðrún. Hún lærði árið 2004 en nú hafa útskrifast yfir hundrað kennarar. Hún segir jafnframt að fleiri konur en karlar sæki tímana. Í jógastöðinni Andartaki er boðið upp á margvísleg námskeið og opna tíma í Kundalini-jóga. „Við ætlum að bjóða upp á fría hugleiðslu á morgnana út mars, þar sem leggja má til frjáls framlög sem munu renna til átaksins Mottumars,“ segir Guðrún og bætir við að jógað sé að verða mjög vinsælt hér á landi.
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira