Popp tv fær andlitslyftingu Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 2. mars 2014 15:00 Pétur Örn Valmundarson, dagskrárstjóri Popp tv, er ánægður með breytingarnar á stöðinni. Gassi
Sjónvarpsstöðin Popp tv fékk yfirhalningu á dögunum, útliti hennar var breytt og merki Popp tv líka. Stöðin verður í opinni dagskrá og einnig streymt út á netinu. „Það er margt spennandi framundan hjá okkur og við höfum lagt mikið í innlenda dagskrárgerð,“ segir Pétur Örn Valmundarson, dagskrárstjóri Popp tv.Nýir og ferskir þættir„Tónlist og dagskrárgerð verður bæði innlend og erlend og sniðin að ungu fólki. Við verðum með nokkra nýja þætti eins og Prófíl, Óskalög og Á bak við borðin. Geimtíví, Sjáðu og Íslenski listinn verða áfram á dagskrá.“Öllu tjaldað til í beinniSöngkeppni Samfés verður í beinni útsendingu frá Laugardalshöll þann 8. mars milli klukkan eitt og fjögur „Þetta verður stór og flott útsending og öllu tjaldað til. Útsendingin verður í beinni á Popp tv og á heimasíðunni okkar.“ Í vikunni á undan keppninni verða sýndir upphitunarþættir fyrir keppnina þar sem verða viðtöl við keppendur og aðstandendur.Stöðin er stökkpallur„Einnig má nefna að nýr sketsaþáttur, 12:00, fer í loftið um miðjan mars. Þættirnir eru gerðir af nemendum Verslunarskóla Íslands og hafa verið í gangi þar í fjölda ára en verða nú í fyrsta skipti sýndir í sjónvarpi. „Margir þekktustu skemmtikraftar Íslands stigu sín fyrstu skref á sjónvarpsstöðinni og við ætlum að halda áfram að vera stökkpallur fyrir þá sem vilja ná langt í sjónvarpi.“Leita að sjónvarpsstjörnu„Á næstunni munum við einmitt kynna leik sem við verðum með þar sem við munum leita að næstu sjónvarpsstjörnu. Við hvetjum því alla þá sem hafa góða hugmynd að sjónvarpsþætti að koma henni til okkar á heimasíðu stöðvarinnar, popptv.is. Það er til mikils að vinna, sigurvegararnir fá hálfa milljón króna og samning við Popp tv um að framleiða þáttinn,“ segir Pétur.Margar góðar hugmyndirHann segir að nú þegar hafi stöðinni borist tölvupóstar og símtöl frá fólki sem vill koma hugmyndum sínum á framfæri. „Þetta eru snjallar og góðar hugmyndir sem fólk er að senda okkur og við erum ótrúlega ánægð með áhugann.“Hlustað á áhorfendur Popp tv verður aðgengilegt og virkt á samfélagsmiðlum, Facebook, Instagram, Twitter og Yevvo. „Yevvo er nýr miðill en þar getum við sent út beint þaðan sem við erum þegar við erum að gera eitthvað skemmtilegt. Við munum hlusta á áhorfendur okkar og leyfa þeim að taka þátt í því sem við erum að gera.“
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira