Atvinnutónlistarmaður frá 6 ára aldri Gunnar Leó Pálsson skrifar 1. mars 2014 13:30 Hér spila Björn Thoroddsen og Tommy Emmanuel saman á tónleikum í Háskólabíói árið 2011. Þeir endurtaka leikinn um næstu helgi. mynd/einkasafn „
Ég fékk fyrsta gítarinn árið 1959, þegar ég var fjögurra ára gamall og hef ekki sleppt honum síðan,“ segir ástralski gítarsnillingurinn Tommy Emmanuel en hann er væntanlegur til landsins í næstu viku og heldur tónleika í Háskólabíói 8. mars. Hann kemur úr músíkalskri fjölskyldu og lék fjölskyldan saman sem hljómsveit. „Við lékum öll á hljóðfæri, spiluðum úti um allt og reyndum að lifa á tónlistinni,“ segir Tommy og bætir við að eini munurinn frá þeim tíma til dagsins í dag sé að nú sé hann einn á tónleikaferð. „Í dag fæ ég betri laun og gisti á flottari hótelum.“ Tommy er þó ekki alltaf einn á ferð. „Konan mín er með mér og líka tveir aðstoðar-/umboðsmenn. Ég er einnig með 3 gítara,“ bætir Tommy við. Kona Tommys, Jane Emmanuel, kann einnig aðeins á gítar en hún er hans helsti aðstoðarmaður og sér meðal annars um að búa til myndbönd, vinna þau og setja á netið. „Ég hef gaman af því að setja myndbönd á netið og kann vel við þessa nýju stefnu.“ Þá aðstoðar hún eiginmann sinn í einu og öllu á tónleikaferðalögum. Tommy er stórstjarna á netinu og er með yfir tólf milljónir áhorfa á aðgangi sínum á vefsíðunni YouTube. Þar fyrir utan er fjöldi myndbanda sem ekki eru skráð á hann og áhorfin því mun fleiri en tólf milljónir. „Ég er gamaldags og hafði ekki hugmynd um vinsældir mínar á YouTube. Á árunum 2005 til 2006 var ég farinn að selja upp á stórtónleika í Evrópu og spurði því umboðsmanninn minn hvernig á þessu stæði. Þá svaraði hann að ég væri með margar milljónir áhorfa á YouTube,“ útskýrir Tommy. Hann hefur spilað úti um allan heim síðan á níunda áratugnum en byrjaði ekki að fylla stórar tónleikahallir fyrr en á árunum 2003 til 2004, síðan þá hefur leiðin bara legið upp á við. Tommy hélt tónleika á Íslandi 9. janúar árið 2011 fyrir fullu Háskólabíói. „Þegar ég fékk tölvupóst varðandi Íslandsferðina, þá sagði ég við sjálfan mig, vá, ég hef aldrei komið þangað. Ég elska Ísland og hlakka mikið til að koma aftur.“ Á tónleikunum árið 2011 léku Tommy og Björn Thoroddsen saman, eru þeir miklir vinir? „Ég sá myndbönd af honum áður en ég kom til Íslands og síðan þegar ég hitti hann urðum við strax góðir vinir,“ segir Tommy um vinskapinn. Björn mun hita upp fyrir Tommy en þá ætla þeir einnig að taka nokkur lög saman á tónleikunum. „Ég hlakka svakalega til, þetta er það flottasta sem maður kemst í,“ segir Björn Thoroddsen spurður út í samspilið. Tommy kemur hingað til lands föstudaginn 7. mars, daginn fyrir tónleikana, en stefnt er á að hann verði með kynningu í Tónstöðinni síðdegis en það liggur þó ekki fyrir sem stendur. Miðasala er á midi.is.Íslenskir tónlistarmenn dást að TommySigurgeir SigmundssonVisir/GVASigurgeir Sigmundsson: „Margir hafa sennilega velt því fyrir sér að losa sig við hljóðfærið þegar þeir sáu hann fyrst. Ég var einn af þeim. Hann er náttúrulega algjörlega magnaður spilari. Hann hefur á sinn persónulega hátt náð einstökum tökum á hljóðfærinu.“Björgvin HalldórssonMynd/RósaBjörgvin Halldórsson: „Hann er einn af fimm bestu kassagítarleikurum heimsins. Ég sá hann þegar hann kom hingað fyrst. Ég hafði sérlega gaman af því þegar Bjössi vinur minn steig á svið með honum. Það var gaman að sjá að Bjössi hafði í fullu tré við hann. Hann er úr annarri vídd hann er svo góður.“Björn Thoroddsenvisir/GVABjörn Thoroddsen: „Ég heyrði fyrst af þessum snillingi í kringum árið 2004. Ég var mikið á ferðinni á þessum tíma og keypti DVD-disk með honum, setti diskinn í tækið og það lá við að ég hætti að spila. Ég þurfti að peppa mig mikið upp til að spila aftur. Þetta var alveg nýtt og það þarf enga smá orku til að spila í tvo klukktíma, einn á sviðinu.“Kristján GrétarssonMynd/EinkasafnKristján Grétarsson: „Mögulega einn besti gítarleikarinn í „acoustísku“ deildinni og stórkostlegur skemmtikraftur. Ég hef séð ansi mörg vídeó af honum og vonast til þess að fá að sjá hann næst. Það eru algjör forréttindi að fá mann af þessu kalíberi til landsins. Hann og Guthrie Govan eru mínir uppáhaldsgítarleikarar.“Smári Tarfur JósepssonMynd/EinkasafnSmári Tarfur Jósepsson: „Hann er skemmtikraftur fastur í líkama gítarleikara. Hann er einstakur sýningargripur. Hann er með þvílíka tækni að maður stendur agndofa yfir því sem hann getur gert.“
Mest lesið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Sjá meira