Erlent

Forseti Úkraínu úr veikindaleyfi

Eva Bjarnadóttir skrifar
30 þúsund stjórnarandstæðingar mótmæltu á sunnudag.
30 þúsund stjórnarandstæðingar mótmæltu á sunnudag. Fréttablaðið/AP
Viktor Yanukovych, forseti Úkraínu, snýr til baka úr stuttu veikindaleyfi dag. Veikindaleyfi forsetans vakti áhyggjur af því að hann væri í þann veg að lýsa yfir neyðarástandi í landinu.

Fjarvera Yanukovych varð til þess að ró komst á samskipti stjórnar og stjórnarandstöðu, en endurkoma hans er líkleg til þess að kveikja aftur undir deilunum.

Á sunnudag voru stærstu mótmæli andstæðinga forsetans haldin í miðborg Kænugarðs og komu saman um 30 þúsund manns á aðaltorgi borgarinnar. Helstu leiðtogar andstæðinga tóku til máls og kröfðust meðal annars lausnar allra 116 mótmælendanna, sem handteknir hafa verið í mótmælunum undanfarna þrjá mánuði.

Gert er ráð fyrir að þing Úkraínu taki fyrir á fimmtudag breytingar á stjórnarskrá sem minnka völd forsetans og færir þau forsætisráðherra landsins.

Yanukovych hefur enn ekki skipað forsætisráðherra í stað Mykola Azarov, sem sagði af sér í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×