Óviðunandi ástand við Tjörnina Freyr Bjarnason skrifar 15. febrúar 2014 00:01 Höfundar skýrslunnar leggja til að hafið verði ræktunarstarf við Tjörnina eins og á árunum 1956 til 1970. Fréttablaðið/Daníel
Aldrei frá upphafi mælinga á fuglalífi Reykjavíkurtjarnar árið 1973 hafa andapör verið jafnfá og á síðasta ári. Varpafkoman var jafnframt ein sú lélegasta sem mælst hefur. Þetta kemur fram í skýrslu sem Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur, og Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndarfélags Íslands, unnu fyrir borgaryfirvöld. „Fimm andategundir hafa verið árvissir varpfuglar á þessu tímabili: stokkönd, gargönd, duggönd, skúfönd og æður. Varpstofnum gagandar, duggandar og æðar hefur hnignað verulega og að óbreyttu munu þessar tegundir hverfa úr fuglafánu Tjarnarinnar innan fárra ára,“ segir í skýrslunni. Þrjár meginskýringar eru taldar líklegastar á lélegri varpafkomu: fæðuskortur, afrán og hnignun búsvæða. „Tjörnin er fuglagarður í miðri borg og umsjón og ábyrgð þessa svæðis er á hendi borgaryfirvalda. Ástand mála við Tjörnina er fullkomlega óviðunandi og í engu samræmi við mikilvægi Tjarnarfuglanna fyrir borgarbúa,“ segir í skýrslunni. Í henni er lagt til að hafið verði ræktunarstarf, líkt og stundað var á árunum 1956 til 1970, þegar egg voru klakin og ungarnir aldir á Tjörninni. Jafnframt að ráðinn verði eftirlitsmaður til að sjá um umhirðu fuglanna. „Nýleg endurheimt votlendis í friðlandinu í Vatnsmýri er af hinu góða og þessum tilraunum veður haldið áfram á árinu 2014.“ Framkvæmdirnar í Vatnsmýrinni hafa staðið yfir frá árinu 2012 að frumkvæði Norræna hússins í samstarfi við Reykjavíkurborg og Háskóla Íslands. Jarðvegur hefur verið fjarlægður og yfirborðið lækkað. Þannig verður búsvæðið blautara sem leiðir til þess að kjörlendi, sérstaklega fyrir endur til að verpa í, stækkar. Skýrsluhöfundar segja að framkvæmdirnar hafi haft jákvæð áhrif á fuglalífið. Kríuvarp hafi verið í uppsveiflu og endur komið upp ungum undir verndarvæng hennar. „Það er von okkar að þessar breytingar hafi jafnframt áhrif á varp anda, það þéttist og fái vernd í friðlandinu.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira