Umhverfissinnar æfir með ákvörðun ráðherra Jón Júlíus Karlsson skrifar 4. janúar 2014 21:42
Umhverfisverndarsinnar eru æfir yfir ákvörðun umhverfis- og auðlindaráðherra að breyta friðlýsingarskilmálum sem unnir voru af Umhverfisstofnun fyrir stækkun friðlands í Þjórsárverum. Verndarsinnar telja með þessu opnað á virkjunarkosti í efri Þjórsá sem gæti spillt einni fallegustu fossaröð landsins. Ráðherra segir verndarsinna fara með rangt mál. Náttúruverndarsamtök Íslands telja að Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, reki fleyg inn í hjarta Þjósársvers með því að undanskilja svæði vestan Þjósársvers. Með þessu sé á ný opnað á Norðlingaölduveitu í efri Þjórsá en deilt hefur verið um þá virkjun um árabil. Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, segir ákvörðun umhverfisráðherra umdeilda. „Það mátti svo sem búast við því að þessi ríkisstjórn myndi breyta stefnunni og þarna er ríkisstjórnin að halda þessum glugga opnum að Norðlingaölduveita verði reist,“ segir Guðmundur.Glæsileg fossaröð í hættu Ein glæsilegasta fossaröð landsins er í efri Þjórsá. Efstur er Kjálkaversfoss en neðar koma þeir Dynkur og Gljúfurleitarfoss en þessum fossum líkja margir við Gullfoss enda tilkomumiklir fossar. Guðmundur óttast örlög þessara fossa. „Það myndi endanlega gera út af þessa fossa ef Norðlingaölduveita verður reist. Það hefði átt að vera búið að stinga þessum áformum inn í skúffu fyrir löngu. Niðurstaðan var sú að það ætti ekki að virkja á þessu svæði, svæðið fór í verndarflokk og við héldum að þessi deila væri úr sögunni.“Svæðið enn í verndarflokki Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra segir umhverfisverndarsinna gera alltof mikið úr ákvörðun sinni. Hann leggur áherslu á að Norðlingaölduveita sé í verndarflokki og verði innan friðlandsins. „Við erum fyrst og fremst að ná mjög stórum áfanga í náttúruvernd á Íslandi með því að friðlýsa mjög stóran hluta þessa svæðis, stækka friðlandi í Þjósárverum talsvert og friðlýsa þann kost sem settur var í vernd í rammaáætlun 2,“ segir Sigurður Ingi í samtali við fréttastofu Stöðvar 2. Umhverfisráðherra segir það ekki vera í hans verkahring að taka ákvarðanir um hvaða svæði eigi og eigi ekki að virkja. Hann er þó hrifinn af fossunum í efri Þjórsá. „Þetta eru gullfallegir fossar. Ég fór um svæðið í hestaferð fyrir nokkrum árum og þetta er gullfallegt svæði.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira