Útrýma á ofbeldi í garð geðsjúkra Eva Bjarnadóttir skrifar 22. janúar 2014 07:00 Sveinn Rúnar Hauksson. Fréttablaðið/Vilhelm
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og varaformaður Geðhjálpar, telur að nauðung og ofbeldi eigi ekki rétt á sér í meðferð geðsjúkra. Hann var sjálfur nauðungarvistaður fjórum sinnum á níunda áratugnum. Hann vonar að ráðstefna Geðhjálpar geti orðið fyrsta skrefið í átt að því útrýma ofbeldi og niðurlægjandi meðferð í garð geðsjúkra. „Nú er orðið langt um liðið síðan ég upplifði þetta síðast eða nærri 30 ár. Það var í janúar 1985,“ rifjar Sveinn Rúnar upp. „Við komuna á deildina var ekkert talað við mig heldur strax kallaðir til sex til sjö gæslumenn af öllum deildum. Þeir tóku mig strax með valdi, felldu mig í gólfið og sprautað var í mig lyfi. Skammtarnir af Haldoli voru fjórfaldir á við það sem nú þykir ráðlegt,“ segir hann. Sveinn Rúnar segir að þótt margt hafi breyst til batnaðar viðgangist þetta ofbeldi enn, þvinguð lyfjagjöf, þegar sjúklingar neita þeirri lyfjagjöf sem læknar ákveða. Með sérhæfðri þjálfun þyki nú nóg að láta þrjá til fjóra starfsmenn halda sjúklingi. Á þessum árum gerðu lög ráð fyrir að geðsjúkir þyrftu að vera hættulegir sjálfum sér eða öðrum svo réttlæta mætti nauðungarvistun. „Ég hef aldrei slegið til nokkurs manns eða gert tilraunir til þess að skaða sjálfan mig. Þannig að lögin áttu aldrei við um mig,“ útskýrir Sveinn Rúnar. Lögunum var síðar breytt og nú nægir að einstaklingur sé haldinn alvarlegum geðsjúkdómi eða sé í ástandi sem jafnist á við alvarlegan geðsjúkdóm. Sveinn Rúnar segist sannfærður um að vilji sé til breytinga, en ólík sjónarmið séu um hvort hægt sé að koma algerlega í veg fyrir nauðung í geðlækningum. „Ég tel að með breyttri löggjöf, viðhorfum og þjálfun sé hægt að útiloka nauðung og ofbeldi í geðheilbrigðiskerfinu,“ segir Sveinn Rúnar, sem vonar að ráðstefna Geðhjálpar geti orðið til þess að efla mannréttindi og mannvirðingu, sem er grundvöllur góðrar meðferðar.Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar.fréttablaðið/valliEngin vísindi sem styðja nauðung Geðhjálp heldur ráðstefnu um sjálfræðissviptingar, nauðung og valdbeitingu í heilbrigðisþjónustu á Grand Hóteli á fimmtudag. „Við höldum ráðstefnuna svo fólki verði ljóst hvernig þessum málum er háttað. Þetta er ekki einhliða mál kerfisins, og það eru engin vísindi sem styðja þessar aðferðir. Hins vegar er til fjöldi rannsókna sem sýna hversu slæm áhrif nauðung hefur,“ segir Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar, sem kallar eftir breyttum vinnubrögðum og segir að nýta megi betur reynslu þeirra sem gengið hafa í gegnum nauðungarvistun.
Tengdar fréttir Á annað hundrað vistaðir nauðugir Ár hvert er á annað hundrað manns nauðungarvistað á sjúkrahúsi vegna alvarlegra geðsjúkdóma. 15. desember 2013 14:17 Lægsta hlutfall nauðungarvistana af Norðurlöndunum Nauðungarvistanir eru hlutfallslega fæstar á Íslandi miðað við Norðurlöndin. Ástæðurnar eru ekki kunnar en tengjast meðal annars smæð samfélagsins. Aðgangi að upplýsingum um fjölda nauðungarvistana og sjálfræðissviptingar er aftur á móti mjög ábótavant. 18. desember 2013 10:00 Nýjar aðferðir spara bæði fjármagn og sársauka Auður Axelsdóttir vill þróa nýjar aðferðir á Íslandi til að taka á bráðatilvikum hjá alvarlega geðveikum. Það spari fjölskyldum bæði fjármagn og sársauka. Nýjar aðferðir krefjast endurmenntunar hjá heilbrigðisstarfsfólki og nýrra viðhorfa. 17. desember 2013 10:00 Vopnaðir verðir og lögregluvald Sigríður Örnólfsdóttir var í tvígang nauðungarvistuð í langvinnri baráttu við geðsjúkdóm, sem hófst fyrir sautján árum í kjölfar þess að ungur sonur hennar lenti í lífshættu. 15. desember 2013 15:30 Framkvæmd nauðungavistana gagnrýnd Margvísleg gagnrýni hefur komið fram á framkvæmd nauðungarvistana hér á landi en flestir eru sammála um að ekki sé hægt að komast hjá slíkum aðgerðum. 19. desember 2013 10:00 Létta ábyrgðinni af fjölskyldum geðsjúkra Aðstandendur geðsjúkra og fagfólk gagnrýna að fjölskyldur séu látnar sækja um nauðungarvistun fyrir ástvini. Á Akureyri hefur þróast ólíkt verklag við að nauðungarvista fólk, þar sem félagsþjónustan er umsækjandinn. 16. desember 2013 06:00 Ráðuneyti skoðar nauðungarvistanir Innanríkisráðherra segir nauðungarvistun og sjálfræðissviptingu til skoðunar hjá ráðuneytinu. Til athugunar er aðkoma aðstandenda að beiðnum um nauðungarvistun, en samkvæmt ráðuneytinu fjölgar beiðnum frá félagsþjónustu en fækkar frá aðstandendum. 20. desember 2013 07:00 Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira
Á annað hundrað vistaðir nauðugir Ár hvert er á annað hundrað manns nauðungarvistað á sjúkrahúsi vegna alvarlegra geðsjúkdóma. 15. desember 2013 14:17
Lægsta hlutfall nauðungarvistana af Norðurlöndunum Nauðungarvistanir eru hlutfallslega fæstar á Íslandi miðað við Norðurlöndin. Ástæðurnar eru ekki kunnar en tengjast meðal annars smæð samfélagsins. Aðgangi að upplýsingum um fjölda nauðungarvistana og sjálfræðissviptingar er aftur á móti mjög ábótavant. 18. desember 2013 10:00
Nýjar aðferðir spara bæði fjármagn og sársauka Auður Axelsdóttir vill þróa nýjar aðferðir á Íslandi til að taka á bráðatilvikum hjá alvarlega geðveikum. Það spari fjölskyldum bæði fjármagn og sársauka. Nýjar aðferðir krefjast endurmenntunar hjá heilbrigðisstarfsfólki og nýrra viðhorfa. 17. desember 2013 10:00
Vopnaðir verðir og lögregluvald Sigríður Örnólfsdóttir var í tvígang nauðungarvistuð í langvinnri baráttu við geðsjúkdóm, sem hófst fyrir sautján árum í kjölfar þess að ungur sonur hennar lenti í lífshættu. 15. desember 2013 15:30
Framkvæmd nauðungavistana gagnrýnd Margvísleg gagnrýni hefur komið fram á framkvæmd nauðungarvistana hér á landi en flestir eru sammála um að ekki sé hægt að komast hjá slíkum aðgerðum. 19. desember 2013 10:00
Létta ábyrgðinni af fjölskyldum geðsjúkra Aðstandendur geðsjúkra og fagfólk gagnrýna að fjölskyldur séu látnar sækja um nauðungarvistun fyrir ástvini. Á Akureyri hefur þróast ólíkt verklag við að nauðungarvista fólk, þar sem félagsþjónustan er umsækjandinn. 16. desember 2013 06:00
Ráðuneyti skoðar nauðungarvistanir Innanríkisráðherra segir nauðungarvistun og sjálfræðissviptingu til skoðunar hjá ráðuneytinu. Til athugunar er aðkoma aðstandenda að beiðnum um nauðungarvistun, en samkvæmt ráðuneytinu fjölgar beiðnum frá félagsþjónustu en fækkar frá aðstandendum. 20. desember 2013 07:00