Áreitti fjórtán ára stúlku kynferðislega í strætisvagni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. október 2014 23:00 Dómurinn taldi sannað að maðurinn hefði áreitt stúlkuna líkt og hann var sakaður um. Vísir/Vilhelm
Karlmaður á fertugsaldri var í Hæstarétti í dag dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni í garð fjórtán ára stúlku í strætisvagni í Reykjavík. Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í október í fyrra. Þrjú ár eru síðan maðurinn áreitti stúlkuna kynferðislega um borð í strætisvagni á leið frá Kringlunni. Sakaði stúlkan manninn um að hafa klipið í læri sín, sagt henni að hann væri með stóran getnaðarlim og látið sig falla ofan á stúllkuna. Maðurinn viðurkenndi við skýrslutök að hafa klipið í rass stúlkunnar á leið þeirra inn í vagninn. Við aðalmeðferð neitaði hann þó að hafa haft nokkur afskipti af stúlkunni. Kona sem var farþegi í vagninum bar fyrir dómi að maðurinn hefði káfað á brjóstum og lærum stúlkunnar. Þá hefði hann látið sig falla yfir þær. Hún hafi sagt henni að þær ættu að flytja sig aftar í vagninn. Þar lét hún stúlkuna setjast við gluggann en maðurinn settist fyrir aftan. Reyndi hann að tala við stúlkuna en konan hafi sagt honum að hætta því. Þær væru að tala saman. Taldi konan sig finna áfengislykt af manninum. Þegar stúlkan var komin á áfangastað hljóp hún sem leið lá grátandi heim til sín en konan hindraði að maðurinn gæti veitt henni eftirför. Stúlkan sagði móður sinni að hún hefði séð umræddan mann áður áreita ungar stúlkur og vissi nafn hans. Flettu þær manninum upp á Facebook og tilkynntu lögreglunni um hvern ræddi. Verjandi mannsins lagði fram vottorð frá geðlækni þess efnis að maðurinn hefði lent í alvarlegu bílslysi sem drengur. Hann hafi hlotið heilaskaða og samfara því sé dómgreindarbrestur, nokkur greindarskerðing, persónuleikabreyting auk þess sem hann hafi fengið geðroseinkenni. Dómurinn taldi sannað að maðurinn hefði áreitt stúlkuna líkt og hann var sakaður um. Hins vegar væri ósannað að hann hefði sagst vera með stórt typpi og klipið hana í rassinn á leiðinni út úr vagninum. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu og í maí 2012 var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir auðgunarbrot. Nú beri að taka skilorðsdóminn upp. Var maðurinn því dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Þá voru stúlkunni dæmdar 200 þúsund krónur í skaðabætur en hún hafði farið fram á 400 þúsund krónur.Dómurinn í heild sinni.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Sjá meira