Ný íslensk skyrtulína Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 13. mars 2014 10:00 Frá því SKYRTA var sett á laggirnar í haust hafa fimmtán hundruð skyrtur verið sérsaumaðar. Ný lína, SKYRTA Reykjavik lítur dagsins ljós á næstu vikum og fljótlega fer vefverslun í loftið. Frá vinstri: Terry Devos, listrænn stjórnandi og stílisti, Sæþór Dagur sölustjóri, Ólafur Tómas, einn eigenda, Íris Sigurðardóttir hönnuður og Leslie Dcunha framkvæmdastjóri. mynd/stefán
SKYRTA er nýtt merki í íslenskri fatagerð sem sett var á laggirnar í haust. Saumað er eftir máli og annar fyrirtækið vart pöntunum. Á næstu vikum mun fyrsta línan líta dagsins ljós, SKYRTA Reykjavík Viðtökurnar hafa verið frábærar. Við erum búin að framleiða yfir fimmtán hundruð sérsaumaðar skyrtur frá því við fórum af stað í ágúst á síðasta ári,“ segir Ólafur Tómas Guðbjartsson, einn eigenda Skyrtu. „Á næstu vikum setjum við saman okkar fyrstu standard-línu sem mun heita Skyrta Reykjavík og byggjum hana á þeim sniðum sem hafa verið vinsælust hjá okkur. Verslanir hafa þegar sýnt áhuga á að selja línuna frá okkar, sem er mjög spennandi. Ég veit ekki til að þessi þjónusta bjóðist víða á Íslandi,“ bætir hann við.Ólafur þekkir framleiðsluferlið í fataiðnaðinum vel eftir að hafa síðustu ár, rekið Prowler efh. fyrirtæki sem framleiðir bæði efni og fatnað. Hann segist jafnframt þekkja vandamálið að finna vel passandi skyrtu. „Ég er nú bara meðalmaður í vexti með nokkra bjóra í mallanum en mér líður betur í sérsniðnu,“ segir hann sposkur. „Við þekkjum þennan markað vel og að margir eiga í erfiðleikum með að fá á sig skyrtu sem passar. Við ákváðum einnig strax að bjóða skyrtur úr hágæða efnum,“ útskýrir Ólafur, en hægt er að velja úr yfir fjögur hundruð efnum og úr yfir þúsund mismunandi samsetningum.„Fólk hannar í raun sína eigin skyrtu með aðstoð hönnuðar og stílista. Við tökum mál og sniðið er síðan geymt. Þannig getur viðskiptavinurinn pantað nýja skyrtu þegar þarf. Eins förum við heim til fólks og tökum mál ef þess er óskað. Gæði og ending er okkur einnig mikið hjartans mál og til dæmis notum við 120 metra af þræði í okkar skyrtur meðan yfirleitt eru notaðir sjötíu til áttatíu metrar af þræði,“ útskýrir Ólafur. Bækistöðvar Skyrtu eru á Klapparstíg 16 en nánar má forvitnast um Skyrtu á www.skyrta.is.
Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira