Sigurður Ingi í vinnuheimsókn í Japan Stefán Árni Pálsson skrifar 17. febrúar 2014 11:55 Sigurður Ingi Jóhannsson og Nobuteru Ishihara. mynd/vefur umhverfisráðuneytisins
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, átti í dag fund með Nobuteru Ishihara, umhverfisráðherra Japans, í Tókýó en þetta kemur fram í frétt á vef umhverfisráðuneytisins. Ráðherrarnir ræddu um ýmis umhverfismál, þar á meðal um loftslagsmál og hlutverk endurnýjanlegrar orku til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig bar önnur mál varðandi samstarf Íslands og Japans á góma, þar á meðal mögulega fríverslunarsamning EFTA og Japans og ósk Íslands um að gera loftferðasamning við Japan. Ráðherra er nú í vinnuheimsókn í Japan, þar sem hann hittir ráðamenn og kynnir sér samstarf Íslands og Japans á ýmsum sviðum. Ishihara heimsótti Ísland síðastliðið sumar og kynnti sér þá m.a. reynslu Íslands af nýtingu jarðhita. Japanir hafa hug á að nýta jarðhita í auknum mæli til að mæta orkuþörf sinni, en notkun kjarnorku hefur dregist saman þar í landi eftir slysið í Fukushima-verinu og vilji er til þess að nýta endurnýjanlega orku fremur en jarðefnaeldsneyti til að fylla skarð kjarnorkunnar. Ishihara tilkynnti á fundinum að Japan hygðist senda sendinefnd til Íslands á vegum japönsku orkustofnunarinnar, JOGMEG, til að fylgja frekar eftir því samstarfi sem komið er á í jarðhitamálum. Á fundi ráðherranna kom fram vilji til þess að efla samstarf ríkjanna enn frekar, en Japanir hyggjast formlega opna sendiráð á Íslandi nú í vor með sendiherra í Reykjavík, en japönsk sendiskrifstofa hefur verið starfandi hér um hríð.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira