Addaði nauðgaranum á Facebook Edda Sif Pálsdóttir skrifar 17. september 2014 16:50
Hin 24 ára gamla Maria Jimenez Pacifico hélt ásamt vinkonu sinni í miðbæ Reykjavíkur fyrir tveimur og hálfu ári til að skemmta sér. Sú skemmtun breyttist fljótt í martröð því hún vaknaði upp við það að ókunnugur maður var að nauðga henni. Líkur benda til að maðurinn hafi byrlað Mariu eitur í þeim tilgangi að fara með hana heim, þar sem hún vaknaði á dýnu úti á miðju gólfi, umkringd kvenmannsfötum og smokkum. Maria var fljót að hugsa, sá að Facebook-síða mannsins var opin á tölvu rétt hjá og addaði sjálfri sér. Í kjölfarið kærði Maria manninn, lögreglan sá aðstæðurnar sem hún lýsti og við skoðun á bráðamóttöku fannst í henni sæði úr manninum. Hann neitaði engu að síður að hafa haft við hana samfarir. Í sumar fékk Maria þær fréttir að málið yrði fellt niður þar sem ekki væru til staðar nægar sannanir og maðurinn hefði lent í bílslysi og glímdi af þeim sökum við minnistruflanir. „Þýðir það að ef þú lendir í bílslysi að þú megir nauðga fólki?,“ spyr Maria sem er ósátt við kerfið og lögmanninn sem ríkið skipaði henni. Innslagið úr Íslandi í dag má sjá í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Fleiri fréttir Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Sjá meira