Saksóknarinn Gerry Nel þjarmaði að Pistoriusi í vitnastúkunni. „Þú drapst manneskju, það er það sem þú gerðir,“ sagði Nel og spurði í kjölfarið hvort Pistorius væri ekki ábyrgur gjörða sinna.
Ljósmynd af illa leiknu höfði Steenkamp var sýnd í fyrsta sinn og vakti hún óhug meðal viðstaddra. Pistorius brast í grát og var gert stutt hlé á vitnaleiðslunum. Fréttaritari BBC segir móður Steenkamp ekki hafa verið varaða við myndbirtingunni, og bætir því við að ögrandi framkoma saksóknarans leggist illa í viðstadda.
Saksóknarinn spurði Pistorius út í ummæli hans á skotæfingasvæði eftir að hann skaut á vatnsmelónu. Þar sagði Pistorius að melónan væri ekki jafn mjúk og heili og vildi saksóknarinn vita hvort hann hefði verið að kanna hvaða áhrif samskonar skotfæri hefðu á manneskju. „Ummæli mín voru ósmekkleg en þau áttu við um uppvakninga en ekki fólk,“ sagði Pistorius við saksóknarann.
Gert var stutt hádegishlé og héldu vitnaleiðslur áfram eftir hádegi. Saksóknari talaði um tvær rafknúnar viftur í svefnherbergi Pistoriusar og spurði hann í hvaða innstungur þær hefðu verið tengdar. Pistorius kvaðst ekki muna það og sagði saksóknari það sýna fram á að hann væri að ljúga. Hann hefði einnig haldið því fram áður að einungis ein vifta væri í svefnherberginu. „Ég er undir pressu og það er ekki auðvelt,“ sagði Pistorius. „Ég er að berjast fyrir lífi mínu.“ Þá sakaði saksóknarinn Pistorius um að vera búinn að æfa svör sín fyrirfram og sagði að það væri ekki gott fyrir hann.
Pistorius hélt sig við sögu sína frá upphafi; að hann hafi haldið að innbrotsþjófur væri inni á baðherberginu og að hann hefði ekki ætlað að skjóta Steenkamp. „Ég tók í gikkinn. Ég hafði ekki tíma til að hugsa. Ég ætlaði aldrei að skjóta neinn. Ég skaut því ég hélt að einhver ætlaði að koma út og ráðast á mig.“
Réttarhöldin halda áfram í fyrramálið.