Regluverkið skoðað vegna myglusvepps Svavar Hávarðsson skrifar 12. maí 2014 10:46 Tugir fjölskyldna hafa misst mikið en eiga engan rétt á að fá bætur frá tryggingafélagi sínu. Fréttablaðið/Vilhelm
Lög og reglur á sviði byggingarmála verða ef að líkum lætur teknar til heildstæðrar endurskoðunar með tilliti til myglusveppa og tjóns af völdum þeirra. Starfshópur skipaður af ráðherra á að skila af sér tillögum fyrir lok árs. Þingsályktunartillaga 13 þingmanna þessa efnis var til síðari umræðu á Alþingi á föstudag, en flutningsmaður málsins er Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingar. Í nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis er lagt til að tillagan yrði samþykkt óbreytt. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir nefndarálitinu, og sagði að fara yrði yfir lög og reglur, fræðslumál og ekki síst tryggingarmál þeirra sem fyrir því verða að veikjast vegna myglusveppa og missa jafnvel allar sínar eigur. Málið kemur til atkvæðagreiðslu síðar í dag en ekkert er því til fyrirstöðu að það verði samþykkt, enda málið flutt af þingmönnum allra flokka. Tilefni málsins er ekki síst það að um 50 íbúðarhús á Egilsstöðum og Reyðarfirði fóru illa vegna myglusvepps. Eins að yfir 100 fjölskyldur hér á landi hafa þurft að yfirgefa heimili sín til lengri eða skemmri tíma á undanförnum árum vegna heilsufarsáhrifa og annars tjóns af völdum myglusveppa. Tugir þeirra hafa sagt alfarið skilið við húsnæðið, eins og segir í greinargerð tillögunnar. Kristján sagði á Alþingi í gær, á sama tíma og hann hvatti Sigurð Inga Jóhannsson umhverfisráðherra til að hafa hraðar hendur við skipun starfshópsins, að „brenni hús til grunna þá er það tryggingarmál og fæst bætt. Komi hins vegar upp myglusveppur og eina úrræðið er að rífa húsið, og jafnvel með öllum húsgögnum og fatnaði fólks og öðru, þá er það óbætt. Þetta verður starfshópurinn að gera tillögur um því á þessu þarf að taka,“ sagði Kristján og sagði ótækt að fólk missi aleiguna en þurfi áfram að borga af lánum vegna húsnæðis sem hefur verið rifið. Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, tók í sama streng og líkti upplifun fólks vegna þessa vanda sem hamförum, og því alvarlegra væri að engin úrræði væri að finna í kerfinu.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira