Ekki ríkisins að niðurgreiða ráðgjöf til bænda Svavar Hávarðsson skrifar 12. september 2014 07:00 fréttablaðið/vilhelm „
Það er ekki hlutverk ríkisins að greiða fyrir ráðgjafaþjónustu til bænda frekar en annarra atvinnurekenda, ekki frekar en kúasæðingar. Búvörusamningurinn og aðrir samningar við bændur verða áfram til staðar, en margt af þessu á ekki heima þar, að mínu áliti,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar. Bændasamtök Íslands fá 503 milljónir króna, samkvæmt nýframlögðu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Fjárframlagið er samkvæmt búnaðarlagasamningi áranna 2013 til 2017 og er eyrnamerkt m.a. til ræktunarstarfs, ráðgjafaþjónustu til bænda og verkefna á sviði jarðabóta. Ráðgjafaþjónustan er langveigamesta verkefnið í samningum, eða rúmlega 300 milljónir öll fimm árin sem samningurinn nær til. Aðrir þættir er framlag til búfjárræktar, m.a. kynbótaskýrsluhalds og kúasæðinga, og jarðræktarstyrkir. Þeir ganga að mestu til ræktunarsjóðs en einnig til hreinsunar affallsskurða. Spurður um rökin fyrir því að ríkið niðurgreiði sérstaklega ráðgjafaþjónustu til bænda, og önnur verkefni eins og hreinsun affallsskurða og kúasæðingar, segir Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri BÍ, að samningurinn sé einn af grunnsamningum bænda og verkefnin sem þar eru tiltekin ekki minna mikilvæg en önnur sem tengist því að gera umgjörð landbúnaðarins bærilega. Þess utan kaupi bændur ráðgjafaþjónustu í vaxandi mæli, óháð framlagi ríkisins sem er aðeins einn tekjuþáttur inn í Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, en þangað rennur framlag ríkisins. Eiríkur segir starf Ráðgjafarmiðstöðvarinnar sé afar fjölbreytt og ljóst að það myndi valda fyrirtækinu „stórkostlegum vandræðum ef ríkið drægi úr stuðningi sínum.“ Ein af tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar frá nóvember í fyrra er að þessum greiðslum til BÍ verði hætt, en tekið skal fram að framlagið rennur að engu leyti til reksturs Bændasamtakanna. Hagræðingarhópurinn leggur til að búnaðarlagasamningnum verði breytt þannig að áfram verði stuðningur við ákveðin verkefni, og í tillögunni er kornrækt nefnd og verndun búfjárstofna í því samhengi. Guðlaugur, sem sat í hagræðingarhópnum, bætir við að hann sé að undirbúa fyrirspurn til landbúnaðarráðherra vegna þessara útgjalda.Fyrirtæki Bændasamtakanna á 13 stöðumRáðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) er einkahlutafélag í eigu Bændasamtaka Íslands, og tók til starfa 1. janúar 2013. Starfsmannahópur fyrirtækisins samanstendur að mestu af ráðunautum og starfsfólki sem áður starfaði hjá Bændasamtökunum og búnaðarsamböndum um allt land. Starfsmenn RML eru um það bil 50 talsins og starfa á þrettán starfsstöðvum víðs vegar um landið. Starfsemi fyrirtækisins skiptist í þrjú meginsvið;- Undir búfjárræktarsviði eru allar búfjárræktargreinar og þar undir starfa fimm faghópar. Þá tilheyrir því sviði skýrsluhald í búfjárrækt.- Undir nytjaplöntusviði eru þrír faghópar. Því sviði tilheyrir einnig landnýting.- Undir rekstrarsviði eru fjórir faghópar auk þess sem hópur ráðunauta starfar þvert á önnur svið.
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Fleiri fréttir 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Í fjórum vinnum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Sjá meira