Trúleysingjar fylktu liði í Utah Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. apríl 2014 14:20 Uppátækið vakti mikla athygli. vísir/ap
Hópur trúleysingja vakti athygli í borginni Salt Lake City í Utah-ríki Bandaríkjanna um páskana en trúleysingjar fylktu liði fyrir utan höfuðstöðvar Mormónakirkjunnar með mótmælaspjöld á lofti.Al Jazeera fjallar um málið í dag og segir uppátækið vekja athygli þar sem Utah þykir eitt trúaðasta og íhaldssamasta ríki Bandaríkjanna. Þrátt fyrir það héldu Samtök bandarískra trúleysingja landsfund sinn í Salt Lake City og vöktu meðlimir misjöfn viðbrögð meðal borgarbúa. Dan Ellis, formaður samtaka trúlausra í Utah, bað mótmælendur um að hegða sér friðsamlega. „Hvenær borðum við svo börn?,“ spurði einn mótmælendanna og uppskar hlátrasköll fyrir. Meðal mótmælenda voru fyrrverandi mormónar sem afhentu afskráningarbréf sín úr kirkjunni. Að sögn Al Jazeera er erfitt að áætla fjölda trúlausra í Bandaríkjunum en fullyrt er að sá fjöldi hafi aukist umtalsvert. Dave Muscaro, almannatengill Samtaka bandarískra trúleysingja, segir margar ástæður fyrir því að Salt Lake City hafi verið valin sem samkomustaður trúleysingjanna. Meðal annars hafi þeir viljað ögra yfirvöldum sem mótfallin séu hjónabandöndum samkynja para. Einnig vildu trúleysingjarnir sýna sívaxandi fjölda trúlausra í ríkinu stuðning sinn. Nánar má lesa um mótmælin á vefsíðu Al Jazeera.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Sjá meira