Bjartir dagar sagðir kosningahátíð á kostnað bæjarbúa í Hafnarfirði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. febrúar 2014 11:00 Rósa Guðbjartssdóttir, oddviti sjálfstæðismanna og félagar, hennar gagnrýna flutning á bæjarhátíð fram fyrir bæjarstjórnarkosningar.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja meirihluta Samfylkingar og Vinstri grænna í bæjarstjórn ætla að efna til kosningahátíðar á kostnað bæjarsjóðs. Sjálfstæðismenn vísa til þeirrar „skyndiákvörðunar“ meirihlutans að halda bæjarhátíðina Bjarta daga að þessu sinni í apríl. Menningar- og ferðamálanefnd bæjarins hafi hins vegar lagt til að viðburðurinn eða sambærileg hátíð yrði ekki haldin um mánaðamótin maí/júní líkt og verið hafi heldur síðar á árinu. Það hafi verið gert í ljósi eindregins vilja sem komið hafi fram á stefnumótunarfundi í haust. „Nú hefur hins vegar verið ákveðið, án nokkurs samráðs, að ganga þvert á vilja fundarins og flýta hátíðinni. Bjartir dagar verða því nú haldnir í lok apríl eða um mánuði fyrir bæjarstjórnarkosningar. Meirihlutinn blæs sumsé til kosningahátíðar á kostnað bæjarbúa, - án faglegs samráðs eða eðlilegs undirbúnings fyrir bæjarhátíð sem þessa,“ segir í bókun minnihluta Sjálfstæðisflokks.Leggi þá fram tillögu um frestun Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og VG sögðu að þó að á fundinum síðastliðið haust hafi verið rætt hvort endurskoða ætti tímasetningu og fyrirkomulag hátíðarinnar væri það beinlínis rangt hjá sjálfstæðismönnum að niðurstaðan hafi verið sú að leggja af Bjarta daga eða halda hátíðina á tilteknum öðrum tíma. Menningar- og ferðamálanefnd hafi ákveðið samhljóða að endurskoða tímasetningu hátíðarinnar. Það hafi fyrst og fremst byggst á því að ekki væri heppilegt að halda hátíðina á hefðbundnum tíma í ár þar sem hún myndi bera upp á sömu helgi og kosningar til sveitarstjórna. Samþykkt hafi verið samhljóða á fundi á máundaginn var að hátíðin syldi haldin í tengslum við Sumardaginn fyrsta og tengd fleiri viðburðum á sviði menningarmála um það leyti. „Ef það er vilji bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að öllum reglulegum viðburðum á vegum menningar- og ferðamálanefndar verði frestað fram yfir kosningar þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að þeir leggi fram tillögur þess efnis í menningar- og ferðamálanefnd,“ bókuðu fulltrúar meirihlutans.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira