Vilja Listaháskólann í miðbæinn Eva Bjarnadóttir skrifar 18. febrúar 2014 14:30 Hluti af starfsemi Listaháskólans fer fram við Sölvhólsgötu 13, sem er hluti af stjórnarráðsreitnum. Vísir/Heiða
Borgarráð beitir sér fyrir því að Listaháskóli Íslands rísi á svokölluðum Stjórnarráðsreit við Sölvhólsgötu. Nú er gert ráð fyrir byggingu þriggja ráðuneyta á reitnum. Í bréfi borgarráðs til forsætisráðherra er honum tilkynnt um endurskoðun á deiliskipulagi svæðisins og óskað er eftir afstöðu forsætisráðuneytisins til þess möguleika að Listaháskólinn rísi á reitnum. „Reykjavíkurborg vill vinna þétt með Listaháskólanum að því að leysa úr húsnæðisvanda hans. Það er ástæðan fyrir þessu öllu saman,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. „Það væri frábært fyrir Listaháskólann að vera þarna og það væri flott fyrir þetta svæði að fá skólann,“ segir Dagur. Starfsemi Listaháskólans er nú dreifð um borgina. Upphaflega sóttist skólinn eftir lóð við Laugaveg, en það skipulag fékkst ekki samþykkt. Síðan þá hafa húsnæðismál skólans verið í biðstöðu. Dagur B. Eggertsson„Þetta er okkar leið til þess að ýta við málinu. Stjórnarráðið efndi til hönnunarsamkeppni um reitinn árið 2002 og við viljum kalla fram svör um hvað eigi gera,“ segir Dagur. Hann segir nauðsynlegt að taka af skarið, bæði varðandi staðsetningu Listaháskólans og skipulag Stjórnarráðsreitsins. Heimilt er að rífa þrjú steinhús, það er hús Hæstaréttar við Lindargötu 3 sem nú hýsir meðal annars fjármálaráðuneytið. Hús Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu 7, sem var friðað árið 2011, og hús við Sölvhólsgötu 13 sem nú hýsir hluta af starfsemi Listaháskólans. Fjórða húsið, hús Landsímans við Sölvhólsgötu 11 var rifið árið 2002 í kjölfar samkeppni um nýbyggingu þriggja ráðuneyta. Ljóst er að ef steinhúsin þrjú fá að standa yrði að taka eldri áform um uppbyggingu stjórnarráðsins á reitnum til endurskoðunar. Reykjavíkurborg lýsir sig reiðubúna að þróa stjórnarráðsreitinn með framtíðarþarfir Listaháskóla Íslands og stjórnarráðsins í huga. Ef ekki yrði að byggingu Listaháskóla á reitnum vill borgarráð að öðrum kosti byggja almennar leiguíbúðir, í samræmi við viðræður borgarinnar og tveggja ráðuneyta um lóðir undir leiguíbúðir.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira