Erlent

Mannréttindadómstóll Evrópu staðfestir bann við andlitsslæðum

Randver Kári Randversson skrifar
Frönsk kona með niqab-slæðu.
Frönsk kona með niqab-slæðu. Vísir/AFP
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur staðfest lögmæti banns við því að bera tiltekna gerð af andlitsslæðum í Frakklandi. BBC greinir frá þessu.

24 ára gömul frönsk kona höfðaði málið þar sem hún hélt því fram að bann við að bera tiltekna gerð af andlitsslæðu, sem kallast niqab, bryti gegn tjáningar- og trúfrelsi hennar. Konan sagðist ekki vera undir neinum þrýstingi frá fjölskyldu sinni að bera slæðuna heldur kysi hún að gera það vegna trúar sinnar.

Árið 2010 var sett bann í Frakklandi við að bera tiltekin höfuðföt sem ætlað er að hylja andlit fólks og er heimilt að sekta þá sem brjóta þessi lög um allt að 150 evrur.

Í dómi Mannréttindadómstólsins kemur fram að bannið sé ekki byggt á trúarlegri merkingu andlitsslæðunnar heldur á þeirri staðreynd að slæðan hylur andlitið. Dómurinn taldi einnig að sýna bæri því sjónarmiði skilning að á opinberum stöðum ættu einstaklingar ekki að verða vitni að hegðun sem grefur undan möguleikum á þeim opnu persónulegu samskiptum sem almennt viðurkennt er að séu ómissandi hluti af viðkomandi samfélagi.

Frakkland er það ríki Vestur-Evrópu þar sem flestir múslímar búa, eða um fimm milljónir manna. Talið er að aðeins um 2000 konur klæðist fötum sem hylja andlit algjörlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×