Innlent

Gruggugt vatn úr krönum Eyfirðinga

Mörgum Eyfirðingum brá í brún í gær þegar óhreint hitaveituvatn fór að renna úr krönum þeirra og varð þessa meðal annars vart á Akureyri. Vatnið mun þó ekki vera skaðlegt því Norðurorka segir að þetta sé leirlitur, sem komi úr borholu á Laugalandi.

Þar hafi líklega orðið hreyfing á borholuvegg og leir losnað út í vatnið. Búist er við að leirinn skoli sig sjálfur út úr kerfinu og stífli ekki inntök í hús, en starfsmenn Norðurorku eru til taks ef einhver vandræði hljótast af þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×