Þjóðaratkvæði um ESB ekki mál forystumanna í Brussel Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. janúar 2014 18:30
Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra segir að afstaða forystumanna Evrópusambandsins til hugsanlegrar atkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB ekki skipta máli, enda sé þetta fullveldismál Íslands. Forsætisráðherra gaf í skyn í Kryddsíld að óráðlegt væri halda þjóðaratkvæðagreiðsluna á fyrri hluta kjörtímabilsins og vitnaði í samtal sitt við forystumenn ESB.Hér má sjá stöðu viðræðna við ESB áður en þeim var hætt: Viðræðum var lokið í 11 köflum, viðræður stóðu yfir í 16, samningsafstaða Íslands lá fyrir í tveimur köflum til viðbótar en í fjórum köflum, þeirra á meðal kafla um sjávarútveg og kafla um landbúnað, hafði samningsafstaða ekki verið mótuð. Í stjórnarsáttmála segir að ekki verði haldið lengra í viðræðum við ESB nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Sigmundur Davíð sagði í Kryddssíldinni á Stöð 2 að hann væri afslappaður gagnvart tímasetningu fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu.Vitnaði í fund með forystumönnum ESB í Brussel „Ég ræddi þetta mál við forystumenn Evrópusambandsins, Barroso (forseta framkvæmdastjórnar ESB innsk.blm) og Van Rompuy (forseta leiðtogaráðs ESB) þegar ég heimsótti þá sl. sumar. Ég spurði: Hvernig tækjuð þið í það ef að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi um hvort Ísland ætti að vera í þessum viðræðum og það yrði samþykkt en ríkisstjórnin sem ætti að vera í þeim viðræðum væri á móti aðild. Hvorugur þeirra hafði nú nokkurn tímann heyrt um annað eins. Báðir þurftu að hugsa sig um en komust að sömu niðurstöðu. Það bara gengi ekki upp. Það væri ekki hægt að vera í viðræðum við ríkisstjórn um aðild að Evrópusambandinu ef sú ríkisstjórnin væri ekki með það að markmiði að ganga í sambandið,“ sagði forsætisráðherra í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag. Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, gekk á forsætisráðherra í þættinum og spurði hvort hann gæti ekki gefið skýrt svar um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan yrði. Hann gaf ekki skýrt efnislegt svar um það. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra og nefndarmaður í samninganefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu, segir afstöðu forystumanna Evrópusambandsins ekki skipta neinu máli í þessu samhengi.Eitthvað sem Íslendingar ákveða sjálfir „Þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslum þá er alveg ljóst að það er fullveldisréttur hvers aðildarríkis og miklu fremur fullveldisréttur umsóknarlanda hvenær þau halda þjóðaratkvæðagreiðslur og hvaða ríkisstjórnir annast viðræður við Evrópusambandið. Þannig að það er ekki hlutverk forystumanna sambandsins að ákveða þessa hluti, tímasetningar eða hvaða ríkisstjórnir eiga í viðræðum við þá,“ segir Þorsteinn.Ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu er hreint innanríkismál Íslands, ekki satt? „Þetta er innanríkismál Íslands og það er ekki í samræmi við fullveldi Íslands, sem ríkisstjórn hvers tíma á að varðveita, að bera þessi ummæli fyrir sig ef áformin eru að svíkja kosningaloforð. Því þetta er einfaldlega það sem Íslendingar ákveða sjálfir. Bæði tímasetningu og hvaða ríkisstjórn þeir tefla fram í slíkum viðræðum,“ segir Þorsteinn. Hvorki náðist í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, né Jóhannes Þór Skúlason aðstoðarmann hans í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira