Endurskoða innra eftirlit vegna njósna Snærós Sindradóttir skrifar 20. ágúst 2014 08:59 Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Þrátt fyrir að skráningar- og skýrslukerfi lögreglunnar, LÖKE, geymi upplýsingar um allar uppflettingar sem gerðar eru er ekkert virkt eftirlit með misnotkun á kerfinu. Heimildir Fréttablaðsins herma að vegna ákæru sem þingfest var fyrir héraðsdómi í gær á hendur lögreglumanni fyrir misnotkun á LÖKE-kerfinu hafi embætti Ríkislögreglustjóra til skoðunar að taka upp hertari reglur um notkun kerfisins, jafnvel með því fyrirkomulagi að skýringu verði að gefa fyrir uppflettingum í hvert sinn. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að skoða verði hvernig farið verði með upplýsingar í LÖKE-kerfinu en Árni Albertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirmaður tæknimála hjá Ríkislögreglustjóra, segir að í dag hafi embættið eftirlit með því hverjir fái auknar aðgangsheimildir í kerfinu. Árni segir enn fremur að ekki sé vinnandi vegur að fylgjast með öllum uppflettingum vegna fjölda þeirra. „Það koma á hverju ári upp grunsemdir um að upplýsingar hafi lekið. Þá metur viðkomandi lögregluembætti hvort þeir vilja gera eitthvað í málinu,“ segir Árni. Lögreglumaðurinn sem kom fyrir dómara í gær og neitaði sök er sakaður um að hafa á sex ára tímabili flett upp nöfnum 45 kvenna í LÖKE-gagnagrunninum og skoðað þar upplýsingar um konurnar, án þess að uppflettingarnar tengdust starfi hans sem lögreglumanns. Umræddur lögreglumaður neitar sök.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira