Ekki náðist saman í makríldeilunni 7. febrúar 2014 18:43 Engin niðurstaða fékkst í makrílviðræðunum í dag. Mynd/Óskar
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það mikil vonbrigði að samningar um veiðar á makríl hafi ekki náðst á fundi svo kallaðra strandríkja á fundi í Lundúnum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins. „Við vorum þess fullviss að nú væri kominn tími til að klára þessar viðræður, sérstaklega í ljósi þess að ráðgjöf um heildarveiði fyrir yfirstandandi ár hafði verið hækkuð umtalsvert. Ráðgjöfin hafði verið hækkuð um 64% af ICES (Alþjóða hafrannsóknarráðið), en hún dugði greinilega ekki til að mati sumra strandríkjanna,“ segir Sigurður og bætir við að "í ofanálag urðum við vitni að verulegri óbilgirni Norðmanna. Þeir lögðu til að heildarveiðin yrði aukin í 1,3 milljónir tonna, sem er tæplega 50% meira en ráðgjöfin hljóðar uppá og 140% meira en ráðgjöfin fyrir árið í fyrra. Þetta er í hróplegri mótsögn við almennt viðurkennd viðmið strandríkjanna um varúðarsjónarmið og að veiðar á makríl eigi að vera sjálfbærar.“ Sigurður segir að Íslendingar hafi á undanförnum mánuðum gefið töluvert eftir til að reyna að ná samningum: „Eftir að nýja ráðgjöfin um heildarveiði barst frá ICES vikum við nokkuð frá kröfum okkar. Við höfðum náð samningsgrunni með Evrópusambandinu um hvernig væri hægt að ljúka þessu. Og það gerðum við í góðri trú. Það eru því mikil vonbrigði að aðrir skuli ekki hafa fallist á þessa lausn, því hún hefði tryggt sjálfbæra nýtingu á makríl stofninum á komandi árum.“ Færeyskir fjölmiðlar segja að bitist hafi verið um skiptingu 0,8 prósenta kvótans. „Þetta er umdeilanleg tala og ég vil hvorki staðfesta né neita henni,“ sagði Sigurgeir Þorgeirsson, aðalsamningamaður Íslands, við Fréttablaðið í gær.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira