Erlent

Lítur á tölvuárás Norður-Kóreu sem skemmdarverk ekki árás

Samúel Karl Ólason skrifar
Obama hefði viljað að Sony hefði haft samband við sig áður en hætt var við birtingu The Interview.
Obama hefði viljað að Sony hefði haft samband við sig áður en hætt var við birtingu The Interview. Vísir/AP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segist ekki líta á tölvuárás Norður-Kóreu á tölvukerfi Sony, sem stríðsaðgerð. Þess í stað horfi yfirvöld þar í landi á árásina sem skemmdarverk. Washington íhugar nú að setja Norður-Kóreu aftur á lista yfir ríki sem styðja við hryðjuverk.

Kvikmyndadeild Sony hætti við útgáfu myndarinnar The Interview eftir að kvikmyndahús hættu við að sýna hana. Hakkararnir höfðu þá hótað að gera árásir á kvikmyndahús þar sem myndin væri sýnd. Sony vill þrátt fyrir það sýna myndina á einhvern hátt.

„Hvernig það verður gert veit enginn enn,“ hefur AP fréttaveitan eftir lögmanni Sony. Í myndinni er Kim Jong-un, einræðisherra Norður Kóreu ráðinn af dögum.

Obama lofar þó að bregðast við árásinni og segir að Bandaríkin muni ekki sæta sig við ógnanir hakkara.

„Í lít ekki á þetta sem árás í stríði. Ég tel að þetta hafi verið skemmdarverk sem reyndist okkur mjög dýrt. Við tökum þessu að mikilli alvöru,“ segir Obama.

Ný tegund stríðs

Repúblikaninn John McCain er þó ekki sáttur við þessa skilgreiningu forsetans.

„Þetta er ný tegund stríðs og við verðum að bregðast við þeirri tegund með betri tegund stríðs. Flokkssystir McCain, Lindsey Graham segir árásina vera hryðjuverk og segir að herða eigi viðskiptaþvinganir gegn Norður-Kóreu. Hann vill einnig að landinu verði bætt aftur við listann yfir ríki sem styðja við hryðjuverk.

Norður-Kórea var á þeim lista í tvo áratugi, en ríkisstjórn George Bush tók þá af listanum árið 2008 þegar kjarnorkuviðræður stóðu yfir. Einungis Íran, Súdan, Sýrland og Kúba eru á listanum.

Þá hafa yfirvöld í Pyonyang hótað því að bregðast hart við verði landið sett aftur á umræddan lista.  þetta kom fram í tilkynningu frá þjóðaröryggisráði Norður-Kóreu, en ekkert var tekið fram um hver þau viðbrögð yrðu.

Hafa beðið Kína um aðstoð

AP hefur heimildir fyrir því að Washington hafi beðið stjórnvöld í Kína um hugmyndir hvernig bregðast ætti við tölvuárásinni. Þá segja þeir að ríkin hafi skipst á upplýsingum um árásina. Þrátt fyrir að Obama hafi áður sakað Kína um tölvuárásir á Bandaríkin.

Í nýlegu viðtali við CNN ítrekaði Obama að hann væri óánægður ákvörðun Sony um að birta The Interview ekki. Sony hefur hins vegar gefið út að þeir hefðu ekki haft aðra kosti eftir að kvikmyndahús hættu við að sýna myndina.

Obama sagðist hafa viljað að Sony hefði haft samband við sig.

„Ég hefði mögulega haft samband við kvikmyndahúsakeðjurnar og dreifingaraðila og spurt þá um hvað málið snerist.“

Norður-Kórea hefur neitað því að hafa komið að árásinni og buðu yfirvöld þar fram hjálp sína við rannsókn málsins í gær. Hvíta húsið hafnaði því og segjast þeir vera öryggir með að Norður-Kórea hafi komið að árásinni.


Tengdar fréttir

Team America tekin úr sýningu

Kvikmyndahús ætluðu að sýna brúðumyndina í stað The Interview, en dreifingaraðili myndarinnar bannaði það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×