Erlent

Fólkið sem berst gegn útbreiðslu ebólu maður ársins hjá Time

Atli Ísleifsson skrifar
Kent Brantley, bandarískur læknir sem smitaðist af veirunni og síðar læknaðist, er einn þeirra sem birtist á forsíðu tímaritsins.
Kent Brantley, bandarískur læknir sem smitaðist af veirunni og síðar læknaðist, er einn þeirra sem birtist á forsíðu tímaritsins. Mynd/Time
Bandaríska tímaritið TIME hefur útnefnt fólkið sem berst gegn útbreiðslu ebóluveirunnar sem mann ársins.

Kent Brantley, bandarískur læknir sem smitaðist af veirunni, er einn þeirra sem birtist á forsíðu tímaritsins, en hann segir það mikinn heiður að vera talinn í hóp þeirra sem deila verðlaununum með sér.

Time veitir þeim manni, eða þeim hópi, sem hefur haft mest áhrif á heiminn og fréttirnar á árinu, sama hvort það hafi verið til góðs eða ills.

Ebólaveiran geisar enn í Vestur-Afríku þar sem rúmlega 17 þúsund tilfelli hafa komið upp og rúmlega sex þúsund látist. Þó er talið að raunverulegur fjöldi sé mun hærri.

Frans páfi hlaut titilinn á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×