Arnar: Breiðablik spennandi kostur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. október 2014 14:56 Arnar lék lengi með Breiðabliki. Vísir/Vilhelm
Arnar Grétarsson segir að það komi vel til greina að taka að sér þjálfunarstarf á Íslandi en allar líkur eru á að hann sé á heimleið frá Belgíu. Arnar hefur verið starfandi sem yfirmaður knattspyrnumála undanfarin ár. Fyrst hjá AEK í Grikklandi og nú síðast hjá Club Brugge en hann hætti þar í lok ágústmánaðar. „Ég er með mann í því að skoða mín mál en það er eins og með svo margt annað - maður þarf að vera réttur maður, á réttum stað og á réttum tíma. Eins og staðan er núna hjá mér er ekkert fast í hendi,“ sagði Arnar í samtali við Vísi í dag. Að öllu óbreyttu mun hann flytja heim í lok mánaðarins. „Ég var búinn að vonast til að finna eitthvað fyrir 29. október en það lítur ekki út fyrir það. Það er ekki óalgengt enda tók það mig fimm mánuði að finna eitthvað annað eftir að ég hætti hjá AEK í Grikklandi.“ Hann hefur sótt sér þjálfaramenntun og þarf lítið til að fá öll leyfi til að taka þjálfa á Íslandi. „Ég var auðvitað mjög nálægt því að taka að mér starf á Íslandi áður en ég fór út en ef ég kem heim þá hefði ég áhuga á því að þjálfa. Það kemur allt til greina.“ Óvíst er hvort að Guðmundur Benediktsson verði áfram þjálfari Breiðabliks og hefur Arnar verið sterklega orðaður við stöðuna. „Maður hefur heyrt af þessu og Breiðablik er spennandi kostur. En ég skoða fyrst mín mál úti,“ sagði Arnar sem sagðist ekki hafa átt í beinum viðræðum við forráðamenn Breiðabliks. „En mig hefur alltaf langað til að prófa að þjálfa og láta reyna á það hjá mér. Þetta er einna næst því sem maður kemst því að vera leikmaður sem er það skemmtilegasta sem maður gerir.“
Fótbolti Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira