Viðskipti innlent

Guðmundur í Brimi ætlar að stefna Elliða

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Elliði Vignisson og Guðmundur Kristjánsson.
Elliði Vignisson og Guðmundur Kristjánsson. Vísir/Pjetur/Stefán
„Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum verður stefnt fyrir rógburð og tilraun til að sverta  mannorð,“ segir Guðmundur Kristjánsson oft kenndur við Brim í tilkynningu til fréttastofu.

Tilefni tilkynningar Guðmundar eru fréttir í fjölmiðlum undanfarna daga vegna deilna hluthafa í DV. Reynir Traustason greindi frá því að Guðmundur hefði lánað sér fjármuni til að kaupa hlutabréf í DV þegar félagið glímdi við hreina neyð.

Guðmundur segist ætla að stefna Elliða fyrir rógburð og tilraun til að sverta mannorð sitt. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum velti því upp hvort Guðmundur hefði afhent Reyni 15 milljónir í þeim tilgangi að kaupa sér óvægna og skaðlega umfjöllun um meðeigendur sína í Vinnslustöð Vestmannaeyja (VSV).

Guðmundur viðurkennir að honum finnist stefna og gjörðir meirihluta hluthafa í VSV hafa skaðað félagið sem í dag sé illa rekið sjávarútvegsfyrirtæki.

„Þessa skoðun hef ég sagt á aðalfundum félagsins og í öllum samtölum þegar málefni VSV eru rædd. Ég er ekki í neinum persónulegum deilum við framkvæmdarstjóra VSV,  starfsfólk VSV eða samfélagið í Vestmannaeyjum, heldur við meirihluta hluthafa VSV. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum er að reyna að slá sig til riddara og nýta sér deilur annara til að vekja athygli á sjálfum sér.“

Yfirlýsing Guðmundar í heild sinni

Í tilefni frétta í fjölmiðlum síðustu daga vegna deilna hluthafa í DV er rétt að geta þess að undirritaður hefur stundað viðskipti í langa tíð. Ég hef í gegnum mín félög styrkt og lánað fjármuni til ýmissa verka, einstaklinga og félaga. Ég hef ekki verið að auglýsa það né tilkynna það opinberlega nema þar sem það á við. Hvort sem það er lán eða styrkir til einstaklinga (eins og lánið til Reynis Traustasonar), líknarfélaga, íþróttafélaga, íþróttamanna, námsmanna, vísindastarfs, listastarfs  eða hvað sem er. En þar sem ég er borinn svo alvarlegum ásökunum af bæjarstjóra Vestmannaeyja þá ætla ég að svara þessu og taka til varnar.   

Þegar Reynir Traustason  kom til mín á síðasta ári og spurði hvort ég vildi verða hluthafi í DV sagði ég strax nei. En þegar hann sagði að það væru komnir fleiri fjárfestar að blaðinu þá sagði ég við hann að ég gæti alveg lánað honum en ég vildi ekki fara í blaðarekstur og það væri ekki mitt fag og ég væri oft ekki sammála skrifum DV. Ég hef heldur ekki verið sammála stefnu og skrifum Morgunblaðsins  síðustu  áratugi og þegar leitað var til mín fyrir nokkrum árum um hlutafé í það blað sagði ég nei.

Það má segja um mín viðskipti á síðustu árum að þau hafi bæði verið viturleg og óviturleg en að segja að ég hafi stjórnað ritstjórnarstefnu DV er rangt og fjarri öllum raunveruleika.

 

Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum verður stefnt fyrir rógburð og tilraun til að sverta  mannorð. Sem  hluthafi í Vinnslustöðinni í  Vestmannaeyjum hef ég verið í deilum við meirihluta hluthafa.   

Ég hef talið að stefna og gjörðir meirihluta hluthafa Vinnslustöðvarinnar (VSV) í Vestmannaeyjum hafi skaðað VSV  og í dag sé félagið illa  rekið sjávarútvegsfyrirtæki  vegna stefnu meirihluta hluthafa og meirihluta stjórnar VSV.

Þessa skoðun hef ég sagt á aðalfundum félagsins og í öllum samtölum þegar málefni VSV eru rædd. Ég er ekki í neinum persónulegum deilum við framkvæmdarstjóra VSV,  starfsfólk VSV eða samfélagið í Vestmannaeyjum, heldur við meirihluta hluthafa VSV. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum er að reyna að slá sig til riddara og nýta sér deilur annara til að vekja athygli á sjálfum sér.


Tengdar fréttir

Hafnar ritstjórastöðu hjá DV

Björn Þorláksson, ritstjóri AKV, segir í færslu sinni á Facebook að honum hafi verið boðin staða ritstjóra hjá DV. Þar segir hann jafnframt að hann hafi hafnað tilboðinu.

Slagnum um eignarhald DV frestað um eina viku

Reynir Traustason, ritstjóri DV, segir deilur innan eigendahóps DV ehf. hljóta að enda með ósköpum. Hann sakar stjórnarformann félagsins um lögbrot. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður gefur lítið fyrir ásakanirnar og segir Reyni hafa stundað bolabrögð á aðalfundi félagsins í gær.

Björn Leifsson farinn af fundinum: Vantar undirskrift

Björn Leifsson, eigandi World Class og nýr hluthafi í DV, yfirgaf hluthafafund DV á Hótel Natura um klukkustund eftir að hann hófst þegar það kom í ljós að undirskrift eins eigenda félagsins Catalina ehf., sem Björn keypti á þriðjudag, vantar á kaupsamninginn.

Reynir viðurkennir að hafa fengið lán frá Guðmundi

„Það er rétt að félag í eigu Guðmundar lánaði mér til kaupa á hlutafé rétt eins og Gísli Guðmundsson, kenndur við B&L, veitti slíkt lán sem síðan fór inn í einkahlutafélagið Ólafstún,‟ segir Reynir á fésbókarsíðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×