Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi Hakkari, er sakaður um að hafa svikið út skyndibita að andvirði 350 þúsund krónur á árunum 2012-2013. Þetta kemur fram í ákæru á hendur Sigurði, en þingfesting málshöfðunar gegn honum fer fram á morgun.
Sigurður á að hafa svikið út skyndibitann með því að stunda reikningsviðskipti í nafni tveggja fyrirtækja sem hann átti ekki. Hann er sakaður um að hafa sölsað undir sig annað fyrirtækið með því að svíkja eigandann.
Samkvæmt ákærunni var Sigurður tíður gestur á American Style, KFC og Subway. Alls er hann sakaður um að hafa svikið tæpar 150 þúsund krónur af fyrirtækinu FoodCo sem er rekstraraðili American Style, Eldsmiðjunnar og Greifans á Akureyri. Sigurður á að hafaborðað á öllum þremur stöðunum.
Sigurður á einnig að hafa svikið út rúmar 110 þúsund krónur í pizzum frá Domino‘s, tæpar 29 þúsund krónur í kjúklingum frá KFC og samlokur frá Subway fyrir rúmar tuttugu þúsund krónur. Honum er einnig gert að sök að hafa svikið út 43.300 krónur í veitingum frá TGI Fridays í Smáralind.
Ofan á skyndibitana bætast svo tvær heimsóknir á steikhúsið Argentínu. Þar pantaði Sigurður mat fyrir rúmar 33 þúsund krónur. Meint svik Sigurðar á fyrirtækjum í veitingarekstri nema því 382.128 krónum í heildina.
Meint þýfi og svik Sigurðar eru metin á rúmar þrjátíu milljónir. Hann er sakaður um að hafa sölsað undir sig útgáfufyrirtæki með því að blekkja eiganda fyrirtækisins árið 2013. Strax í kjölfarið fjölgaði meintum svikum mikið.
Í ákærunni er Sigurður sakaður um að hafa þóst ætla að kaupa útgáfufyrirtækið og falsa reikningsyfirlit og millifærslur og þannig gabbað eiganda fyrirtækisins. Sigurður varð með því prókúruhafi fyrirtækisins og stofnaði þannig til reikningsviðskipta við fjölda annarra fyrirtækja, án þess að greiða fyrir þeirra þjónustu. Áður hafði Sigurður notað nafn annars fyrirtækis til þess að stofna til reikningsviðskipta, árið 2012.
Sigurður er 22 ára gamall. Í fyrra var hann dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn 17 ára pilti. Í kjölfarið var hann hnepptur í gæsluvarðhald vegna gruns um kynferðisbrot gegn fleiri piltum.