Sigurður sem er aðeins tuttugu ára gamall hefur verið mikið í fréttum undanfarið. Hann er sagður hafa leikið mörgum skjöldum og skilið eftir sig sviðna jörð víða.
Í sumar var hann úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald grunaður um stórfeld fjársvik.
Embætti ríkissaksónara felldi þó nýverið niður svokallað Nóa Siríus fjárkúgunarmál á hendur honum þar sem að gögn sem fram komu í málinu töldust ekki líkleg eða nægjanleg til sakfellingar.
Sigurður mætti á glæsilegri Audi bifreið til fundar við Harmageddon í morgun. Hægt er að hlusta á spjallið hér að ofan.

Sigurður segir að sér hafi verið misboðið þegar gögn, eða tölvupóstar, sem Wikileaks komst yfir frá sýrlensku ríkisstjórninni og svokallaðar Global Inteligence upplýsingar, voru birtar á vef samtakanna. Þá hafi hann ákveðið að láta bandaríska sendiráðið á Íslandi vita af málinu sem var svo upphafið að því að FBI komu með einkaþotu til landsins til þess að ræða við Sigurð, en hann var boðaður á þingnefndarfund vegna málsins.
Hann þvertekur þó fyrir að samstarf hans með bandarískum yfirvöldum hafi verið nokkurskonar hefndaraðgerð vegna ásakana á hendur honum um fjárdrátt frá samtökunum.
„Að fara inn í tölvukerfi og stela upplýsingum af svona stórum skammti, það er bara rangt,“ segir Sigurður sem segir þetta hreinlega hafa verið réttlætismál.
En finnst þér að Julian Assange og Wikileaks samtökin eigi bara heima í fangelsi?
„Nei ég segi það ekki, en mér finnst þeir eiga svara fyrir sínar sakir. Wikileaks eru samtök sem segjast ekki hafa neinar pólitískar tengingar en samt er Julian assange í framboði til þings í Ástralíu og hann er með sjónvarpsþátt á sjónvarpsstöðinni Russia Today sem er mikið rekin af rússneska ríkinu. Wikileaks eru svo samtök sem berjast fyrir réttlæti en á sama tíma er Julian Assange að flýja undan réttlæti fyrir kvenfólk í Svíþjóð hvort sem hann kann eða kann ekki að hafa stundað kynlíf með þeim eða ekki. Þetta er bara hroki.“
Aðspurður að því hvort það geti verið að hann eigi erfitt með að vera heiðarlegur segir Siggi svo ekki vera heldur séu öll þessi mál sem lögreglan er með í rannsókn á honum flókin og eigi öll eftir að skýrast betur síðar.
