Innlent

Gunnar Andersen dæmdur í fangelsi

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Hæstiréttur dæmdi í dag Gunnar Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, í eins árs skilorðsbundið fangelsi.

Þá staðfesti Hæstiréttur einnar milljónar krónu sekt héraðsdóms yfir Þórarni Má Þorbjörnssyni, fyrrverandi starfsmanni Landsbankans.

Gunnar var ákærður fyrir að brot á þagnarskyldu með því að brjóta bankaleynd þegar hann fékk starfsmann Landsbankans til að afla gagna um fjármál Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns fyrir sig. Þeim gögnum var síðan komið til DV sem birti frétt byggða á gögnunum.

Gunnar hafði áður verið dæmdur til tveggja milljóna króna sektar í héraði. Hæstiréttur þyngdi hins vegar dóminn.

Þá þurfa Gunnar og Þórarinn að greiða áfrýjunarkostnað upp á rúma eina og hálfa milljón króna auk málsvarnarlauna verjenda sinna, 753 þúsund krónur á mann.

„Við ákvörðun refsingar ákærða Gunnars verður litið til þess að hann hafði styrkan og einbeittan vilja til brotsins og að tilgangur hans með því var að koma höggi á fyrrnefndan mann sem hann taldi sig eiga sökótt við,“ eins og segir í dómnum.

Ákæran var gefin út um miðjan júlí árið 2012 en brot á þagnarskyldu geta mest varðað allt að þriggja ára fangelsi.

Dóminn í heild sinni má sjá á vef Hæstaréttar.




Tengdar fréttir

Gunnar fundinn sekur um trúnaðarbrot

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í gær Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, fyrir brot á þagnarskyldu með því að koma upplýsingum um viðskipti þingmannsins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar til fjölmiðla í því skyni að koma á hann höggi.

Tekist á um vitnalista í máli Gunnars Þ. Andersen

Tekist verður á um vitnalista í máli Gunnars Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins í dag en munnlegur málflutningur fer fram í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Gunnar, ásamt starfsmanni Landsbankans, eru ákærðir fyrir brot á bankaleynd og brot í opinberu starfi. Gunnar á að hafa lekið upplýsingum um félag tengt þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, til DV.

Telja leka Gunnars til fjölmiðla vera einstakt tilfelli

FME og Landsbankinn létu kanna hvort upplýsingaleki sem leiddi til ákæru Gunnars Andersen hefði verið einstakt tilfelli. Niðurstaða beggja var að svo sé. Starfsmaður Landsbankans er enn í ótímabundnu leyfi.

Fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins dæmdur

Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, var dæmdur til þess að greiða tvær milljónir króna í sekt ella sæta fangelsi í 44 daga, fyrir brot í opinberu starfi vegna alvarlegra trúnaðarbrota þegar hann lak upplýsingum um eignarhaldsfélagið Bogamanninn til DV á síðasta ári.

Brot Gunnars Andersen varða árs fangelsi - málið þingfest

Ákæra á hendur Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, verður þingfest rétt fyrir hádegi í dag. Hann er, ásamt starfsmanni Landsbankans, ákærður fyrir brot á þagnarskyldu. Samkvæmt ákæru fékk Gunnar starfsmann Landsbankans til að afla gagna úr bókhaldi bankans um viðskipti Bogamannsins ehf. sem hann afhenti Ársæli Valfells, að beiðni meðákærða en um var að ræða skjal sem sýndi að Landsbanki Íslands hf. greiddi 32.7 milljónir króna inn á bankareikning Bogamannsins ehf. 13. júní 2003.

Niðurstaða vegna Guðlaugs-gagnanna fæst í dag

Dómari mun kveða upp úrskurð sinn í dag vegna kröfu verjanda Gunnars Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, um að saksóknari afli gagna um viðskipti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og notið við sakamálið sem snýr að Gunnari.

Hæstiréttur staðfestir að Guðlaugur Þór og fleiri þurfa ekki að bera vitni

Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að þau Guðlaugur Þór Þórðarson, eiginkona hans, Ágústa Johnson, Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, og Hauk Haraldsson til vitnis í dómsmálinu gegn Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins.

Kröfu Gunnars Andersen hafnað

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Gunnars Þ Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirltisins, um að lagt yrði fyrir saksóknara að afla upplýsinga um gögn og viðskipti Landsbanka Íslands hf. við eignarhaldsfélagið Bogamanninn. Bogamaðurinn var félag í eigu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns.

Játar að hafa komið höggi á Guðlaug Þór

Gunnar Þ. Andersen viðurkennir að hafa reynt að bjarga eigin skinni með því að ljóstra upp um gömul viðskipti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Hann hafi verið undir miklu álagi og sætt aðför úr ýmsum áttum. Hann segist þó ekki hafa brotið lög.

Gunnar fær bætur þrátt fyrir brot í starfi

Fyrirtækið Andersen & Lauth hefur verið dæmt til að greiða Gunnari Hilmarssyni, fyrrverandi eiganda og hönnuði fyrirtækisins, tæpar tvær milljónir króna í vangoldin laun og orlof eftir að honum hafði verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu.

Hæstiréttur hafnaði kröfu Gunnars

Hæstiréttur Íslands hafnaði á föstudag kröfu Gunnars Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, um að aflað yrði gagna um viðskipti Bogmannsins, félags Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns. Málið tengist ákæru á hendur Gunnari fyrir brot á þagnarskyldu í starfi, en málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um þessar mundir. Hann er grunaður um að hafa haft milligöngu um það að gögnum um fyrirtæki Guðlaugs yrði lekið úr Landsbankanum í DV. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað kröfu Gunnars.

Munnlegur málflutningur í máli Gunnars Andersen

Munnlegur málflutningur fer fram í máli ríkissaksóknara gegn Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, og starfsmanni Landsbankans, en þeir eru ákærðir fyrir brot gegn bankaleynd, en málið varðar leka á gögnum til DV er vörðuðu fjárhag Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×