Ég ólst upp á Playboy-setrinu Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 18. apríl 2014 18:53 „
Móðir mín var leikfélagi og kærasta Hughs Hefner á árunum 1976 til 1981. Ég eyddi miklum tíma á Playboy-setrinu þegar ég var að alast upp í Los Angeles. Mamma fór fyrst með mig þangað árið 1988 þegar ég var þriggja mánaða gömul og ég hef farið oft í heimsókn síðan,“ skrifar grínistinn Katie Manzella. Hún er dóttir fyrrverandi Playboy-leikfélaga sem var kölluð Baby Blue en Baby Blue var kærasta Playboy-kóngsins Hughs Hefner. Katie skrifar um tímann með Hugh á Playboy-setrinu á vefsíðu tímaritsins Cosmopolitan. Hún segir að móðir hennar hafi kynnst Hugh í partí þegar hún var nítján ára. „Playboy-setrið var meira eins og fjölskyldustaður fyrir mig. Það var ekki villt og brjálað eins og allir gætu haldið. Við borðuðum saman, horfðum á bíómyndir og fengum okkur sundsprett í sundlauginni – ekkert stórmál. Ég vissi að ég var á töfrastað þegar ég var lítil en fyrir mér var hann venjulegur. Ég sá fullt af stjörnum þarna. Ég fór á fyrsta stefnumótið mitt með frægum manni sem ég hitti þarna en ég vil halda nafni hans leyndu,“ skrifar Katie. Hún segist hafa hugleitt það að gerast leikfélagi þegar hún var unglingur.Katie með móður sinni og Hugh.„Ég er glöð að ég gerði það ekki. Það getur verið frábært en önnur hlið starfsins er ljót. Ég hefði gert það ef það hefði reynst móður minni auðveldara. En ég sá hvað það gerði henni sem er ástæða þess að ég ákvað að lifa lífi mínu á annan hátt.“ Hún ber Hugh góða söguna. „Ég held að Hugh sé sá eini sinnar tegundar og það er gott fyrir hann en það var erfitt fyrir móður mína.“ Bréfið í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira