Erlent

Kínverjar rannsaka myndir sem gætu sýnt brak úr malasísku vélinni

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Frá blaðamannafundinum í dag.
Frá blaðamannafundinum í dag. VÍSIR/AFP
Kínversk yfirvöld rannsaka nú nýjar gervitunglamyndir sem talið er að gætu sýnt brak úr malasísku farþegaþotunni sem hvarf þann áttunda mars síðastliðinn með 239 manns innanborðs.

Kínversk skip eru nú á leið á svæðið sem er á suðurhluta Indlandshafs og búist er við frekari upplýsingum á næstu klukkutímum.

Þetta kom fram í máli samgönguráðherra Malasíu á blaðamannafundi sem haldinn var nú fyrir hádegið.

Stærsti hluti braksins sem sést á myndunum er talinn vera um 22 metrar á lengd og þrettán metrar á breidd.

Flugvélar og skip eru þegar að leita á svæði um 2500 kílómetra undan ströndum Ástralíu eftir að áströlsk gervitungl mynduðu hluti sem talið var að gætu verið brak úr vélinni. Sú leit, sem staðið hefur í þrjá daga, hefur hinsvegar engan árangur borið. Hún gengur hægt enda er svæðið sem um ræðir er á stærð við Danmörku. Hver leitarflugvél getur aðeins verið í tvo tíma á svæðinu áður en þær þurfa að snúa aftur til að taka eldsneyti.

Hér að neðan er myndband frá fréttastofunni CNN þar sem leitinni er lýst:


Tengdar fréttir

Farþegaþota hvarf af radar

Vélin er á vegum Malaysian Airlines en í yfirlýsingu frá flugfélaginu segir að vélin hafi horfið af radar á sjöunda tímanum í gær, nokkrum klukkustundum eftir flugtak.

Kínverjar vilja aukinn kraft í leitina

Kínverjar krefjast þess að malasísk yfirvöld leggi meiri kraft í leitina að Boeing 777-farþegavélinni sem hvarf á laugardaginn. Um borð voru 239 manneskjur.

Farþegaflugvélin breytti um stefnu

Týnda Boeing-farþegaflugvélin í Malasíu breytti um stefnu. Samkvæmt ratsjá var hún komin hundruð kílómetra frá því svæði sem síðast var vitað um ferðir hennar. Ekkert er vitað um ástæðuna fyrir þessari dularfullu stefnubreytingu vélarinnar.

Dularfullt hvarf farþegaflugvélar

Þegar flug MH370 hjá Malaysia Airlines hvarf af ratsjá í góðu veðri síðastliðið laugardagskvöld gat enginn útskýrt hvernig þessi Boeing 777-farþegaflugvél gat horfið að því er virtist upp úr þurru. Síðan þá hafa misvísandi upplýsingar og alls kyns kenningar verið í gangi um hvarfið án þess að nein sönnunargögn hafi komið fram. Hvað sem því líður þá er þessi þota með 239 manneskjur um borð enn ófundin

"Allt í lagi, góða nótt"

Síðustu samskiptin á milli flugmanna malasísku farþegaflugvélarinnar sem hvarf á laugardag og flugumferðarstjórnar voru á þá leið að allt væri í himnalagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×