„Kokkurinn sagðist ekki hafa tíma fyrir svona vitleysu“ Baldvin Þormóðsson skrifar 18. mars 2014 21:05 Veitingastaður VOX er staðsettur á Hilton Nordica hótelinu. „
Svona lítur árshátíðarréttur grænmetisætunnar út að mati Hilton - Vox veisluþjónustu,“ skrifar Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir við mynd sem hún setti á Facebook fyrr í dag. Sæunn er grænmetisæta og situr meðal annars í stjórn samtaka grænmetisæta á Íslandi. „Ég hringi vanalega nokkrum dögum fyrr á veitingastaðinn til þess að spyrja hvort þeir bjóði upp á einhverja rétti fyrir grænmetisætur,“ segir Sæunn í viðtali við Vísi en slíkt var tilfellið í þetta sinn. „Mér var sagt að það væri ekkert mál að útbúa slíka máltíð.“ Hins vegar þegar Sæunn var mætt á staðinn þá vissi ekkert af starfsfólkinu af símtalinu né hvernig ætti að taka á málinu. „Mér var boðið upp á fjóra mismunandi kjötrétti áður en ég fékk síðan meðalstóran matardisk með kínakáli,“ segir Sæunn en manni hennar varð svo misboðið að hann lagði leið sína í eldhús VOX til þess að eiga orð við kokkinn sem hafði útbúið réttina. „Þá sagðist kokkurinn ekki hafa tíma fyrir svona vitleysu, hann væri með fullan stað af fólki,“ segir Sæunn. „Ef að mér hefði bara verið sagt í símann að grænmetisréttur væri ekki möguleiki þá hefði ég nú bara mætt södd,“ segir Sæunn, en eftir atvikið sendi hún kvörtunarbréf á veitingastaðinn sem henni hefur enn þann dag í dag, fimm dögum eftir atvikið, ekki borist svar við.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Sjá meira