Erlent

Fyrstu viku réttarhaldanna yfir Pistorius lokið

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Oscar Pistorius
Oscar Pistorius VÍSIR/AFP
Nú er fyrstu viku réttarhaldanna yfir Suður-afríska spretthlauparanum Oscari Pistorius lokið, en Oscar varð kærustu sinni að bana á Valentínusardag í fyrra. Rétturinn hefur fengið að heyra vitnisburð nágranna hans, lögreglu sem kom á vettvang eftir atburðarrásina og frá svikinni fyrrum kærustu.

Pistorius er ákærður fyrir að hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp, en hann skaut hana í gegnum lokaða baðherbergishurð á heimili sínu í Pretoríu í Suður-Afríku í febrúar á síðasta ári. Hann segist hafa haldið að hún væri innbrotsþjófur.

Steenkamp varð fyrir þremur skotum sem hæfðu hana í handlegg, mjöðm og höfuð. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi. Steenkamp var 29 ára gömul.

Reeva Steenkamp og Oscar Pistorius.VÍSIR/AFP
Hlauparinn hefur grátið, haldið fyrir eyrun og horft niður í gólfið á meðan hvert vitnið á fætur öðru segir frá atburðum næturinnar.

Hræðileg öskur nóttina örlagaríku

107 manns bera vitni í málinu og er Michelle Burger ein vitnanna. Hún býr í tæplega 200 metra fjarlægð frá heimili Pistorius. Hún var fyrsta vitnið í málinu og sagðist hún hafa heyrt hræðilegt kvenmannsöskur nóttina örlagaríku. Hún sagðist fyrst hafa heyrt einn skothvell, síðan hafi komið stutt þögn og þrjú skot fylgdu þar á eftir en það gefur í skyn að Pistorius hafi stöðvað og haldið síðan áfram að skjóta kærustu sína. Verjandi hlauparans sagði að öskrin væru í raun verið Pistorius sjálfur.



Ætlaði að tileinka líf sitt guði

Annað vitni, læknirinn Johan Stipp, sagðist hafi komið að Oscari þar sem hann kraup á hnjánum við hlið kærustu sinnar, grátandi og biðjandi til guðs um að leyfa henni að lifa og þá myndi hann myndi tileinka líf sitt guði. Stipp segir hann hafa haft aðra hönd á nára Steenkamp og tvo fingur hinnar í munni Steenkamp. Svo hafi virst sem hann væri að reyna að koma henni til bjargar. Á meðan á vitnisburði Stipps stóð hélt Pistorius yfir eyrun á sér á meðan hann skalf og grét.

Pistorius grætur á meðan réttarhöldunum stendur.Vísir/afp
Sagði hann haldinn byssuþráhyggju

Vikan endaði svo á vitnisburði fyrrum kærustu Oscars, Samönthu Taylor. Samband þeirra Pistorius hófst þegar Taylor var sautján ára gömul en þegar talið barst að sambandsbrestum þeirra brast Samantha Taylor í grát. Sagði hún hlauparann hafa haldið tvisvar sinnum fram hjá henni meðan samband þeirra stóð yfir með Reevu Steenkamp.

Taylor sagði Pistorius haldinn byssuþráhyggju og sagði frá atviki þar sem Oscar átti að hafa skotið úr byssu útum sóllúgu bíls. Fyrr í vikunni hafði vinur Oscars sagt frá því hvernig hann hafði óvart hleypt af byssu inni á veitingastað, mánuði áður en hann skaut kærustu sína. Hann segir hann hafa fengið vin sinn til að taka á sig sökina fyrir það.

Réttarhöldin yfir Oscari halda áfram á mánudaginn, en innan við 10% þeirra vitna sem kalla á fyrir dóminn hafa borið vitni nú þegar og er því búist við að réttarhöldin geti tekið nokkrar vikur.


Tengdar fréttir

Vitni segist hafa heyrt rifrildi

„Ég spurði eiginmann minn hver það væri sem öskraði svona og hann sagðist halda að það væri Oscar.“

Byssan sem banaði Steenkamp

Fréttastofa Sky birti í dag myndir af suðurafríska spretthlauparanum Oscari Pistorius á skotæfingasvæði þar sem hann mundar sömu byssuna og varð kærustu hans, Reevu Steenkamp, að bana í febrúar í fyrra.

Nágranni heyrði skelfingaröskur Reevu

Suður-afríski íþróttamaðurinn Oscar Pistorius sagðist fyrir dómi í gær vera saklaus af ásökunum saksóknara um að hafa myrt Reevu Steenkamp, kærustu sína, á Valentínusardaginn í fyrra.

Vilja gögn úr síma Pistoriusar

Þrír rannsóknarlögreglumenn í Suður-Afríku hafa verið sendir til Bandaríkjanna í von um að fá hjálp frá Apple-fyrirtækinu .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×