Karlmaður genginn í kvenfélagið í Þykkvabæ Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 23. febrúar 2014 19:57
Konur eru nú ekki lengur einar í kvenfélaginu Sigurvon í Þykkabænum því inntaka á fyrsta karlmanninum í félagið var samþykkt á aðalfundi nýlega. Sá heitir Júlíus Már Baldursson, hænsnabóndi í Þykkvabæ. Hann segir að nýja hlutverkið leggist vel í sig en hann ætlar þó að gefa konunum næði til að ræða sín mál á fundinum og sinna handavinnunni sinni. Júlíus Már ræktar íslenskar landnámshænur í Dísukoti í Þykkvabæ. Hann hefur mikinn áhuga á félagsmálum og hefur sett svip sinn á samfélagið eftir að hann flutti í Þykkvabæinn frá Tjörn á Vatnsnesi en þar missti hann meirihlutann af hænsnastofninum sínum í eldsvoða. Inntöku beiðnin í kvenfélagið var tekin fyrir í lok janúar en 30 konur eru í Sigurvon. Inntökubeiðni Júlíusar Más var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. „Mér líst bara vel á það að vera gengin í Sigurvon enda gott fólk hér og afskaplega almennilegt, allavega það sem ég hef nú þegar kynnst og mér líst bara vel á þetta. Auðvitað geri ég mér vel grein fyrir að þetta er kvennfélag og stelpurnar þurfa að eiga sínar stundir saman og það verður svo eins og föndur,handavinnu og slíkt nú eða ef eihverjir gestir eru á fundum eins og með snyrtivörur í kynningu og slíkt, þetta verða þá bara stundir þeirra stelpnanna, ekki fer ég að mæta á slíkar samkomur enda kann ég hvorki að hekla,prjóna,sauma eða neitt slík”, segir Júlíus Már.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira