Elínrós hjá ELLU tilnefnd til stjórnunarverðlauna Ellý Ármanns skrifar 25. febrúar 2014 18:00 Elínrós Líndal. Mynd/Aldís Pálsdóttir
Elínrós Líndal forstjóri ELLU er tilnefnd til Sjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2014 ásamt fjölda manns. Hér má sjá listann yfir alla sem eru tilnefndir. Að sögn Gunnhildar Arnardóttur framkvæmdastjóra Stjórnvísi voru yfir 50 stjórnendur tilnefndir þetta árið en 3 stjórnendur verða útnefndir 12. mars næstkomandi. Stjórnunarverðlaunin eru afhend árlega af forseta Íslands sem gerir það með mikilli ánægju að sögn Gunnhildar því þarna er verið að setja fókusinn á stjórnendur sem eru að gera vel. Tilnefningarnar koma alls staðar að og geta verið margar tilnefningar að baki hvers og eins. Dómnefnd fer síðan yfir allar tilnefningarnar og á faglegan hátt er metið hverjir verða útnefndir segir Gunnhildur jafnframt. Við heyrðum líka stuttlega í Elínrósu.Mikill heiður Hvernig leggst í þig að vera tilnefnd - og það í þriðja sinn? ,,Það er mikill heiður að vera tilnefndur á meðal einstaklinga sem þykja skara fram úr í stjórnun. Þá sér í lagi þar sem ELLA er nýsköpunarfyrirtæki - einskonar tilraun til að breyta hugsanagangi samfélagsins og heimsins innan tískunnar. Okkar markmið eru háleit - að koma inn í tískuna jafnréttishugsun, samfélagslegri vitund og málefnum er varða umhverfið. Það að við fáum jafn jákvæð viðbrögð og við gerum segir okkur að gildin okkar eiga hljómgrunn hér sem og annarsstaðar. Fyrirtæki sem lifir og andar gildin sín verður alltaf sterkt samfélagslegt afl," segir Elínrós.Góður stjórnandi gengur aldrei einn Þegar talið berst að góðum stjórnanda segir Elínrós:,,Góður stjórnandi gengur aldrei einn. Á degi hverjum er ég ákaflega þakklát fyrir þann hóp af fólki sem hefur ákveðið að leggja allt sitt í að ELLA gangi. Hópurinn á bak við ELLU er enginn venjulegur hópur. Þetta eru einstaklingar sem eru tilbúnir að leggja allt sitt undir í umhverfi þar sem tölfræðin segir okkur að einungis 1% fyrirtækja lifa af sitt fimmta ár. Sem dæmi má nefna að Katrín Káradóttir yfirhönnuður ELLU starfar sem fjallaleiðsögumaður hluta af ári, m.a. í Grænlandi og hefur hún látið þau orð falla að það að starfa sem hönnuður í nýsköpunarfyrirtæki reyni meira á taugarnar heldur en að leiða hóp fólks um óbyggðir Grænlands. Ég á þessu fólki tilnefninguna að þakka. ELLU hópnum."ELLA á FacebookStjórnvísi
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira