Bókum og sögum gert hátt undir höfði í Stykkishólmi Samúel Karl Ólason skrifar 26. febrúar 2014 13:34
Bókahátíðin Júlíana – hátíð sögu og bóka verður haldin um næstkomandi helgi í Stykkishólmi og er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin. Á hátíðinni á að gera bókum og sögum hátt undir höfði og hvetja fólk til að lesa og semja sínar eigin sögur. Þema hátíðarinnar í ár eru glæpir og misgjörðir í sögnum og bókum. Forsvarsmenn hátíðarinnar segja hana líklega vera eina hátíð sinnar tegundar á landinu. Dagskrá hátíðarinnar er helguð lífsstarfi Guðmundar Páls Ólafssonar, náttúrufræðings og rithöfundar, en hún hefst annað kvöld, þegar hátíðin verður sett í Vatnasafninu í Stykkishólmi. Þar verða úrslit smásagnasamkeppni sem efnt var til kynnt ásamt öðrum viðburðum. Á föstudeginum verður dagsrká víða um bæinn og munu íbúar bæjarins bjóða fólki í heimsókn þar sem Hólmarar munu flytja efni að eigin vali. Kvöldinu lýkur með sögugerð á Hótel Egilsen og geta allir tekið þátt í henni. Í tilkynningu um hátíðina segir að hópur fólks í tengslum við hátíðina hafi lesið bók Ármanns Jakobssonar, Glæsi sem er söguleg skáldsaga sem byggir á atburðum úr Eyrbyggju. Ármann mun svo hitta leshópinn á laugardaginn en hann mun einnig halda erindi í gömlu kirkjunni í Stykkishólmi. Þar mun rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson fjalla um bók sína, Sæmd og Árni Þórarinsson mun ræða um tilurð sögupersóna sinna. Leikþátturinn Víg Kjartans Ólafssonar eftir Júlíönnu Jónsdóttur, sem hátíðin er nefnd eftir, verður leiklesinn af leikkonunni Alexíu Björgu Jóhannsdóttir, sem á uppruna sinn að rekja til Stykkishólms.
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira